Íþróttir

Grindvíkingar töpuðu á Húsavík
Föstudagur 24. júlí 2026 kl. 22:05

Grindvíkingar töpuðu á Húsavík

Grindvíkingar máttu þola 2–0 ósigur gegn Völsungi þegar liðin mættust á GPG-vellinum á Húsavík í 15. umferð Lengjudeildar karla.

Elfar Árni Aðalsteinsson reyndist hetja Húsvíkinga og skoraði bæði mörk leiksins. Hann kom heimamönnum yfir strax á 6. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf frá Tómasi Bjarna Baldurssyni. Völsungar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Grindvíkingar fengu gott tækifæri til að jafna í upphafi þess síðari þegar skalli þeirra hafnaði í stönginni.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Það voru þó heimamenn sem tvöfölduðu forystuna á 74. mínútu. Elfar Árni var aftur á ferðinni þegar hann fékk stungusendingu inn fyrir vörnina frá varamanninum Dagbjarti Búa Davíðssyni og lyfti boltanum stórglæsilega yfir markvörð Grindavíkur.

Með sigrinum náði Völsungur í gríðarlega dýrmæt stig í neðri hluta deildarinnar, en Grindvíkingum tókst ekki að nýta tækifærið til að færast nær toppbaráttunni.

Eignasalan
Eignasalan