Guðmundur Leo tvöfaldur danskur meistari
Sundfólk úr Sundráði ÍRB lauk nýverið þátttöku sinni á danska meistaramótinu í sundi þar sem frábær árangur náðist, en Guðmundur Leo Rafnsson stóð uppi sem tvöfaldur meistari.
Guðmundur Leo gerði sér lítið fyrir og vann 200 metra baksund með yfirburðum á sínum besta tíma á lokadegi mótsins. Hann hafði áður tryggt sér gullið í 100 metra baksundi og varð því tvöfaldur danskur meistari eftir afar vel heppnað mót.
Aðrir sundmenn ÍRB stóðu sig einnig með prýði á lokadeginum:
-
Eva Margrét Falsdóttir tryggði sér sæti í úrslitum í 200 metra bringusundi og hafnaði í 6. sæti, skammt frá sínum besta tíma.
-
Daði Rafn Falsson synti 100 metra flugsund í undanrásum og var alveg við sinn besta árangur.
Sundráð ÍRB lýsir á facebook-síðu ráðsins yfir mikilli ánægju með árangur hópsins sem skilaði sínu glæsilega á mótinu.






