Íþróttir

Keflavík sá ekki til sólar í Víkinni
Föstudagur 24. júlí 2026 kl. 22:14

Keflavík sá ekki til sólar í Víkinni

Víkingur R. fór illa með Keflavík þegar liðin mættust á Víkingsvelli í 16. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn mættu af miklum þunga og höfðu betur með öruggum 5–1 sigri.

Víkingar náðu snemma undirtökunum í leiknum. Karl Friðleifur Gunnarsson braut ísinn strax á 6. mínútu og Stígur Diljan Þórðarson tvöfaldadaði forystuna á 16. mínútu leiksins. Staðan var 2–0 í hálfleik.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keflvíkingar mættu af krafti inn í síðari hálfleikinn og minnkuðu muninn strax á 46. mínútu þegar Þorlákur Breki Þ. Baxter kom boltanum í netið. Það kveikti hins vegar í Víkingum sem svöruðu af hörku.

Óskar Borgþórsson kom heimamönnum aftur í tveggja marka forystu á 67. mínútu. Varamaðurinn Tarik Ibrahimagic bætti fjórða markinu við á 82. mínútu og Ármann Ingi Finnbogason, sem var sömuleiðis kominn inn á sem varamaður, rekur síðasta naglann í kistuna á 90. mínútu og innsiglaði öruggan 5–1 sigur Víkings.

Eignasalan
Eignasalan