Farþegar varðir fyrir veðri og vindum við flugstoöðina og ný innkeyrsla
Ný og bætt innkeyrsla hefur verið opnuð inn á komusvæðið við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem meðal annars má finna komubílastæðin eða sótt úr flugi (P2). Þá hefur verið byggt yfir helstu gönguleiðir.
Síðustu mánuði hafa miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á bílastæðunum þeim megin þar sem komufarþegar koma út úr flugstöðinni. Því verkefni mun senn ljúka og öll aðstaðan þar mikið bætt fyrir farþega og allt fólk sem sækir þjónustu eða veitir hana við flugstöðina.
Búið er að byggja yfir helstu gönguleiðir á svæðinu (grænmerktar gönguleiðir á meðfylgjandi mynd). Farþegar eru þannig varðir fyrir veðri og vindum á leið sinni að eða frá þeim samgönguleiðum sem þeir hafa valið.
Þá hefur rennu verið komið fyrir vestast á P2 þar sem hægt er að sækja farþega með sama hætti og þeim er skutlað í flug um rennuna hinum megin. Sömu reglur gilda í þessari rennu upp við flugstöðvarbygginguna og brottfararmegin, þ.e. fimm mínútur gjaldfrjálsar, til að tryggja óhindrað
flæði. Þurfi farþegar lengri tíma til að sækja farþega er gjaldfrjálst í hálfa klukkustund innan hvers sólahrings á komubílastæðunum.
Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.






