Sérstaða Suðurnesja krefst sjálfstæðs embættis
Bæjarráð Reykjanesbæjar og SSS gegn sameiningu lögregluembætta
Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur heilshugar undir afgerandi bókun stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) þar sem eindregið er lagst gegn áformum stjórnvalda um að sameina embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum öðru lögregluembætti. Sveitarfélögin á Suðurnesjum telja varhugavert að leggja niður sjálfstæða stjórnun embættisins og færa ákvarðanatöku í burtu frá svæðinu.
Fjallað var um málið á 1574. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar þar sem tekin var fyrir umsögn SSS í samráðsgátt stjórnvalda vegna áforma um skipulagsbreytingar hjá lögreglunni.
Í bókun SSS er lögð rík áhersla á að þótt mikilvægt sé að efla samstarf lögregluembætta og nýta innviði betur megi þau markmið ekki verða til þess að litið sé fram hjá þeirri miklu sérstöðu sem starfsemi lögreglunnar á Suðurnesjum hefur fyrir öryggi landsins alls.
Keflavíkurflugvöllur og almannavarnir skapa sérstöðu
Í umsögninni er bent á að Suðurnes gegni einstöku hlutverki í landamæragæslu, löggæslu og þjóðaröryggi. Á svæðinu er Keflavíkurflugvöllur, langstærsta alþjóðlega samgöngugátt landsins, auk mikilvægra innviða sem tengjast öryggis- og varnarmálum Íslands.
Verkefni embættisins séu því frábrugðin flestum öðrum lögregluembættum þar sem þau spanna alþjóðlegt samstarf, landamæraeftirlit, viðbrögð við náttúruvá og almannavarnir samhliða almennri löggæslu í ört vaxandi samfélagi. Ekki sé hægt að beita sama skipulagslíkani yfir allt landið án þess að taka tillit til þessara staðreynda.
Ákvarðanataka verði áfram á svæðinu
SSS og bæjarráð Reykjanesbæjar hafna þeim hugmyndum að staðbundinn aðstoðarlögreglustjóri geti komið í stað sjálfstæðs lögreglustjóra með fullt stjórnunarumboð og beina aðkomu að stefnumótandi ákvörðunum.
„Því fjær sem yfirstjórn og endanlegt ákvörðunarvald færist frá Suðurnesjum, þeim mun meiri verður hættan á að sérþekking svæðisins fái minna vægi við ákvarðanatöku og að viðbragðsgeta og sveigjanleiki skerðist,“ segir í bókuninni.
Þá er bent á reynsluna af langvinnu almannavarnaverkefni vegna jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga. Þar hafi staðbundin þekking, skjót viðbrögð og náið samstarf lögreglu, sveitarfélaga og annarra viðbragðsaðila skipt sköpum. Slíkt samstarf og traust byggist upp yfir langan tíma og verði ekki mælt í stærð stjórnsýslueininga.
Kalla eftir nýrri lögreglustöð frekar en óvissu
Í stað þess að skapa óvissu um yfirstjórn og skipulag telur SSS að forgangsverkefni stjórnvalda eigi að vera að tryggja lögreglunni á Suðurnesjum viðunandi starfsaðstöðu, en embættið hefur þurft að búa við ófullnægjandi húsnæði og lengi hefur staðið til að byggja nýja lögreglustöð í Reykjanesbæ.
Krafa um heildstætt áhrifamat
Áður en nokkrar ákvarðanir verða teknar um framtíð embættisins krefjast sveitarfélögin á Suðurnesjum þess að gert verði sérstakt mat á áhrifum mögulegrar sameiningar á meðal annars:
-
Öryggi, viðbragðsgeta og þjóðaröryggi.
-
Landamæraeftirlit og starfsemi á Keflavíkurflugvelli.
-
Almannavarnir vegna náttúruvár á Reykjanesskaga.
-
Stjórnun, boðleiðir og hraða ákvarðanatöku við neyðaraðstæður.
-
Varðveislu sérþekkingar og þjónustu við íbúa og fyrirtæki.
Bæði bæjarráð Reykjanesbæjar og SSS telja ljóst að sameining muni hvergi bæta þjónustu eða auka öryggi. Því sé brýnt að halda áfram að byggja upp öflugt og sjálfstætt lögregluembætti á Suðurnesjum og að haft verði raunverulegt samráð við sveitarfélögin á svæðinu áður en lengra er haldið.







