46 ár frá fyrsta tölublaði Víkurfrétta og lífleg útgáfa framundan
Það er ástæða til að fagna hverju árinu sem líður. Í dag, 14. ágúst, eru liðin 46 ár frá því Víkurfréttir komu fyrst út á Suðurnesjum og blaðið hefur komið út óslitið síðan þá.
Næsta tölublað Víkurfrétta kemur út miðvikudaginn 19. ágúst. Þar munum við gera skil Vitadögum í Suðurnesjabæ, bæjarhátíð Suðurnesjabæjar sem stendur yfir 24. til 30. ágúst næstkomandi.
Þarnæsta tölublað Víkurfrétta verður svo hið árlega Ljósanæturblað Víkurfrétta, veglegt blað þar sem bjartasta bæjarhátíðin fær gott pláss.
Við hvetjum ykkur til að vera tímanlega með auglýsingar og efni í næstu tölublöð Víkurfrétta. Auglýsingar má bóka og senda á póstfangið [email protected] en fyrir efni til ritstjórnar þá er það póstfangið [email protected]
Víkurfréttir hvetja Suðurnesjafólk til að senda ábendingar um áhugavert efni á [email protected].







