MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Viðskipti

Suðurnesjabær semur við Skólamat um skólamáltíðir
Sunnudagur 9. ágúst 2026 kl. 22:08

Suðurnesjabær semur við Skólamat um skólamáltíðir

Suðurnesjabær hefur lokið útboðsferli vegna kaupa á skólamáltíðum fyrir nemendur og starfsfólk grunnskóla sveitarfélagsins. Skólamatur ehf. mun áfram annast þjónustuna samkvæmt nýjum samningi sem gildir til ársins 2030, með heimild til framlengingar.

Consensa innkaupaþjónusta og ráðgjöf hafði umsjón með útboðsferlinu fyrir hönd Suðurnesjabæjar. Eitt tilboð barst, frá Skólamat ehf., sem uppfyllti skilyrði útboðsins og var tilboðið samþykkt.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Samningurinn var undirritaður í síðustu viku af Axel Jónssyni, stjórnarformanni og eiganda Skólamatar ehf., og Árna Gísla Árnasyni, sviðsstjóra og starfandi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar.

„Það er ánægjuleg niðurstaða að semja við Skólamat sem hefur sinnt þessari þjónustu fyrir Suðurnesjabæ og forvera sveitarfélagsins um árabil með góðum árangri. Það er einnig kostur að semja við fyrirtæki sem er með sína aðalstarfsstöð á Suðurnesjunum. Við hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við Skólamat, hér eftir sem hingað til,“ sagði Árni Gísli við undirritun samningsins.

Samstarf Skólamatar við sveitarfélagið og forvera þess nær rúma tvo áratugi aftur í tímann.

„Við hjá Skólamat fögnum því að hafa verið valin til að sinna áfram þessari mikilvægu þjónustu fyrir Suðurnesjabæ. Samstarf okkar við sveitarfélagið og forvera þess hefur staðið yfir í rúma tvo áratugi og á þeim tíma hafa myndast sterk tengsl og gagnkvæmt traust. Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á góðar, næringarríkar og fjölbreyttar máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk skólanna. Við erum stolt af því að vera fyrirtæki með rætur á Suðurnesjunum og hlökkum til að halda áfram að vinna með Suðurnesjabæ að því að styðja við vellíðan og námsumhverfi barna og ungmenna á komandi árum,“ segir Jón Axelsson, forstjóri Skólamatar ehf.

Hljómahöll
Hljómahöll