Helga Dís Jakobsdóttir nýr framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free
Helga Dís Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free. Helga Dís hefur starfað hjá félaginu frá því í febrúar og það er fyrirtækinu sérstakt ánægjuefni að ráða í starfið úr eigin röðum, segir í tilkynningu.
Undir viðskiptasvið Ísland Duty Free heyra vörustýring, markaðsmál, aðfangakeðja og birgðastýring. Sviðið gegnir því lykilhlutverki í mótun vöruúrvals og upplifunar viðskiptavina.
„Við erum afar ánægð að fá Helgu Dís í þetta lykilhlutverk. Ráðningarferlið var vandað og samkeppnin hörð en afar sterkir umsækjendur bæði innan fyrirtækisins og utan þess sóttu um. Það segir sína sögu að niðurstaðan hafi verið innanhússráðning,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free.
Helga Dís hefur gegnt starfi vöruflokkastjóra snyrtivara og sérvöru hjá Ísland Duty Free undanfarna mánuði og þekkir því starfsemina, teymið og birgja félagsins vel. Áður starfaði hún hjá Samkaupum, fyrst sem þjónustu- og upplifunarstjóri, svo sem markaðsstjóri Nettó, þar sem hún stýrði markaðsmálum og þjónustuupplifun keðjunnar á landsvísu og loks sem vöruflokkastjóri. Þar áður var hún rekstrarstjóri veitingastaðarins Hjá Höllu á Keflavíkurflugvelli og starfaði um árabil hjá Bláa lóninu.
Helga Dís er með meistaragráðu í þjónustustjórnun og BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Hún sat í bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á árunum 2018 til 2024.
„Ég er full tilhlökkunar að taka við þessu spennandi hlutverki. Fram undan eru einstakir tímar hjá Ísland Duty Free og ég hlakka til að leiða áfram uppbyggingu á vöruúrvali og upplifun viðskiptavina ásamt frábæru samstarfsfólki,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir.
„Helga Dís hefur á skömmum tíma sýnt í verki að hún er öflugur leiðtogi og viðhorf hennar og gildi samræmast einstaklega vel stefnu Ísland Duty Free. Það er okkur því sérstakt ánægjuefni að sjá leiðtoga vaxa innan okkar eigin raða,“ segir Liam.






