Fréttir

Viðbúnaður vegna almyrkva: Aðgerðastjórn virkjuð og breytingar á umferð
Mánudagur 10. ágúst 2026 kl. 11:47

Viðbúnaður vegna almyrkva: Aðgerðastjórn virkjuð og breytingar á umferð

Víðtækur viðbúnaður verður á Suðurnesjum miðvikudaginn 12. ágúst þegar almyrkvinn á sólu gengur yfir, en búist er við miklum fjölda fólks á svæðinu.

Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir, Brunavarnir Suðurnesja, Slökkvilið Grindavíkur og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja munu efla sinn viðbúnað, auk þess sem aðgerðastjórn verður virkjuð í Reykjanesbæ og þrjár vettvangsstjórnir starfræktar.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Lögreglan hvetur íbúa til að njóta almyrkvans í þéttbýli eða frtá heimahúsum, þar sem hann mun sjást vel, en sveitarfélögin hafa einnig komið upp sérstökum safnstöðum. Fólk er hvatt til að ganga eða hjóla á þá staði þar sem því verður við komið.

Gera má ráð fyrir umferðartöfum og einstefnum. Fyrir þau sem ætla að ferðast er fólk hvatt til að fara snemma af stað, gera ráð fyrir töfum, taka með sér mat, drykk og nauðsynleg lyf og búa sig undir að dvölin geti dregist.

Sérstakar umferðartakmarkanir verða í gildi:

Garðskagavegur/Stafnesvegur (45):
Einstefna verður frá Nesvegi/Hafnarvegi til norðurs í átt að Sandgerði.

Vatnsleysustrandarvegur (420):
Einstefna frá Vogum til austurs í átt að Kúagerði.

Skagabraut að Garðskagavita:
Einstefna að Garðskaga og til baka um Útgarðsveg að golfskálanum í Sandgerði.

Bláalónsvegur:
Alveg lokaður fyrir umferð.

Aðeins má leggja í merktum stæðum og verða ökutæki fjarlægð á kostnað eigenda ef þau hindra umferð eða skapa hættu á vegöxlum.

Flugfarþegar, farsímasamband og öryggi. Farþegar sem eiga bókað flug frá Keflavíkurflugvelli eru hvattir til að mæta tímanlega. Lögreglan vekur einnig athygli á því að mikið álag geti orðið á GSM-kerfinu, sérstaklega utan þéttbýlis. Ef fólk þarf á neyðaraðstoð að halda en næst ekki í 112 er bent á varanúmer Neyðarlínunnar: 599 0112.

Loks er rétt að minna á að nota ávallt viðurkennd sólmyrkvagleraugu þegar horft er til sólar, en venjuleg sólgleraugu veita ekki nægilega vörn. Upplýsingar um safnstaði, bílastæði og viðburði má finna á visitreykjanes.is og solmyrkvi2026.is.

Hljómahöll
Hljómahöll