Vekja athygli á hávaða frá herflugi við Keflavíkurflugvöll vegna hjúkrunarheimilis
Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar hefur lagt fram athugasemd til skipulagsyfirvalda í Reykjanesbæ vegna hávaða frá herflugi við Keflavíkurflugvöll í tengslum við fyrirhugað 90 rýma hjúkrunarheimili við Keilisbraut á Ásbrú.
Eins og áður hefur verið greint frá stendur til að reisa hjúkrunarheimili í fjölbýlishúsum á svæðinu, en Icelandic Home ehf. óskaði eftir að breyta húsunum sem í dag eru með 81 íbúð í hjúkrunarheimili og sameina lóðirnar við Keilisbraut 753 og 754.
Útreikningar ná ekki yfir herflug
Í athugasemd Landhelgisgæslunnar, sem barst á grenndarkynningartíma, er vakin athygli á því að Keflavíkurflugvöllur þjóni bæði her- og borgaralegu flugi. Þar sem almennir hljóðvistarútreikningar svæðisins taka ekki mið af herflugi megi gera ráð fyrir að raunveruleg hljóðvist sé slakari en opinber kort sýna. Beindi Landhelgisgæslan þeim tilmælum til skipulagsyfirvalda að skoðaðar yrðu auknar kröfur til byggingarhönnunar.
Skortur á tölulegum gögnum
Skipulagsráð Reykjanesbæjar bendir á móti á að töluleg gögn um hávaða og tíðni herflugvéla liggi ekki fyrir. Því sé ómögulegt að meta hve mikið slakari hljóðvistin er eða hvaða viðbótarkröfur bæri að gera, sérstaklega í ljósi þess að gögn um umhverfisáhrif herflugs á þá 5.000 íbúa sem þegar búa á Ásbrú séu ekki fyrir hendi.
Skipulagsráð samþykkti erindið, en ábendingu Landhelgisgæslunnar hefur verið komið á framfæri við lóðarhafa sem ber ábyrgð á viðbrögðum við hönnun húsnæðisins.








