MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Aukinn viðbúnaður á HSS vegna almyrkva
Mánudagur 10. ágúst 2026 kl. 10:06

Aukinn viðbúnaður á HSS vegna almyrkva

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) hefur gert sérstaka aðgerðaráætlun vegna almyrkva á sólu. Gert er ráð fyrir verulegri fjölgun ferðamanna á svæðinu, auknu álagi á heilbrigðisþjónustu og hugsanlegum umferðarteppum sem geta tafið sjúkraflutninga. Viðbragðstjórn stofnunarinnar verður virkjuð daginn fyrir almyrkvann og munu fulltrúar hennar vera í góðu samstarfi við lögreglu og aðra viðbragðsaðila.

Aukin mönnun og lengri opnunartími

Mönnun lækna og hjúkrunarfræðinga á bráðamóttöku verður aukin ásamt því sem bakvaktir verða efldar. Þá verður opnunartími heilsugæsluvaktar í Reykjanesbæ lengdur til klukkan 22:00 á miðvikudaginn.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Til að mæta hugsanlegu álagi og tryggja þjónustu verða minniháttar tilfelli flokkuð beint til heilsugæslunnar, en bráðamóttakan tekur við alvarlegri tilvikum.

Fyrirbyggjandi aðgerðir

Sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg til að fyrirbyggja augnskaða. Sjá nánar á heimasíðu HSS https://island.is/s/hss

Hljómahöll
Hljómahöll