Alexandra Jóhannesdóttir tekin við sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Formleg bæjarstjóraskipti fóru fram í Suðurnesjabæ í gær, mánudaginn 10. ágúst, þegar Alexandra Jóhannesdóttir tók við embætti bæjarstjóra. Ráðning hennar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí síðastliðinn.
Alexandra kemur til Suðurnesjabæjar með víðtæka reynslu úr sveitarstjórnarmálum, en hún gegndi starfi sveitar- og hafnarstjóra á Skagaströnd í átta ár. Þar að auki býr hún yfir mikilli þekkingu á stjórnsýslu og samfélagsuppbyggingu.
„Í dag hefst nýr kafli. Ég mun leggja mig alla fram fyrir Suðurnesjabæ og hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki og kjörnum fulltrúum að þeim fjölbreyttu verkefnum sem fram undan eru. Framtíðin er björt í fallega bænum okkar,“ sagði Alexandra í tilefni af tímamótunum.
Á næstu vikum hyggst hún kynnast íbúum, starfsfólki og atvinnulífi svæðisins betur og vinna að sameiginlegri framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið.
Breytingar í stjórnendahópi
Alexandra tekur við embættinu af Árna Gísla Árnasyni, sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra til bráðabirgða undanfarna tvo mánuði. Með komu Alexöndru fer Árni Gísli aftur í sitt fyrra starf sem sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Suðurnesjabæjar.
Árni Gísli hafði tekið við keflinu af Magnúsi Stefánssyni, sem lét af störfum sem bæjarstjóri fyrr á árinu eftir tæplega 14 ára farsælt starf í þágu sveitarfélagsins. Í tilkynningu á vef Suðurnesjabæjar eru þeim Magnúsi og Árna Gísla færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag og dýrmætu störf í þágu samfélagsins og Alexandra boðin velkomin til starfa.







