MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Bandarískir nemendur senda háloftabelgi á loft í almyrkva á Reykjanesinu
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 09:58

Bandarískir nemendur senda háloftabelgi á loft í almyrkva á Reykjanesinu

Í tengslum við almyrkvann sem verður sýnilegur frá Íslandi þriðjudaginn 12. ágúst mun hópur nemenda og kennara úr vísindaklúbbi Hanover High School í New Hampshire í Bandaríkjunum senda tvo rannsóknarháloftabelgi á loft frá Reykjanesi. Verkefnið er hluti af vettvangsnámi nemendanna á Íslandi og er unnið í samstarfi við GeoCamp Iceland og Reykjanes UNESCO Global Geopark.

Undir leiðsögn Kevin Lavigne, náttúrufræðikennara og forsprakka vísindaklúbbs skólans, munu nemendur á aldrinum 15–17 ára rannsaka hvernig almyrkvinn hefur áhrif á lofthjúpinn og umhverfið. Háloftabelgirnir verða búnir fjölbreyttum mælitækjum sem safna gögnum um meðal annars hitastig, loftþrýsting, birtustig og aðrar breytingar sem verða meðan myrkvinn stendur yfir.

Hanover High School hefur um árabil byggt upp öflugt rannsóknarstarf þar sem nemendur hanna og þróa eigin mælitæki og framkvæma raunverulegar vísindarannsóknir. Verkefnið á Íslandi gefur þeim einstakt tækifæri til að rannsaka eitt merkilegasta náttúrufyrirbæri ársins við kjöraðstæður á Reykjanesi.

Áfram Ísland
Áfram Ísland

Nánar má lesa um verkefnið á heimasíðu GeoCamp Iceland: www.geocamp.is/news/science-at-the-edge-of-space-hanover-students-prepare-an-eclipse-mission-to-reykjanes

Vísindi, náttúra og listir mætast í almyrkvanum

Á sama tíma verður einnig framkvæmd sérstök rannsókn á hegðun fugla meðan á almyrkvanum stendur. Stefnt er að því að taka upp hljóð við fuglabjörg á Reykjanesi til að kanna hvort breytingar verði á hegðun fugla þegar birtuskilyrði breytast skyndilega.

Jafnframt mun Elizabeth McTernan, prófessor við Háskólann í Iowa, senda upp sérstakan háloftabelg þar sem ferðalag belgsins um lofthjúpinn verður umbreytt í hljóðverk. Verkefnið sameinar vísindi, gögn og listsköpun og sýnir hvernig nýta má vísindalegar mælingar á skapandi hátt. McTernan hefur um árabil unnið á mörkum lista og vísinda og meðal annars starfað með íslensk-danska listamanninum Ólafi Elíassyni.

GeoCamp Iceland leggur ríka áherslu á vettvangsnám, vísindalæsi og alþjóðlegt samstarf í náttúruvísindum. Þessi verkefni í tengslum við almyrkjvann eru gott dæmi um hvernig nemendur geta tekið þátt í raunverulegum rannsóknum þar sem þeir vinna með vísindamönnum og kennurum að gagnasöfnun og miðlun þekkingar.

Kennurum og almenningi boðið að fylgjast með

Kennurum, nemendum og öllum sem hafa áhuga á vísindum og vísindamiðlun er boðið að fylgjast með undirbúningi og framkvæmd þegar veðurblöðrunum verður sleppt. Nemendur og kennarar frá Hanover High School munu kynna verkefnið á vettvangi og svara spurningum gesta. Jafnframt er stefnt að því að bjóða síðar á árinu til kynningar fyrir íslenska grunn- og framhaldsskóla um verkefnið og hvernig sambærilegar rannsóknir með háloftabelgjum geta orðið hluti af kennslu hér á landi.

Hljómahöll
Hljómahöll