Reykjanesbær Myrkvastund
Reykjanesbær Myrkvastund

Fréttir

Grunnskólar á Suðurnesjum fá snjallsjónauka að gjöf
Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, og Sigrún Svafa Ólafsdóttir frá Reykjanes Unesco Global Geopark með sjónaukana.
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 09:49

Grunnskólar á Suðurnesjum fá snjallsjónauka að gjöf

Reykjanes Unesco Global Geopark hefur, í samstarfi við Kadeco og atNorth, ákveðið að færa grunnskólum á Suðurnesjum Seestar S30 Pro snjallsjónauka að gjöf. Sjónaukarnir verða nýttir í náttúrufræðikennslu á svæðinu.

Verkefnið er liður í metnaðarfullu fræðslustarfi sem unnið hefur verið að í tengslum við sólmyrkvann. Markmið framtaksins er að glæða áhuga ungmenna á vísindum og vekja forvitni þeirra um sólina, tunglið og stjörnurnar.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Í tilkynningu Reykjanes Unesco Global Geopark eru sérstakar þakkir eru færðar Sævari Helga Bragasyni, betur þekktum sem Stjörnu-Sævari, fyrir hans mikilvæga framlag til verkefnisins. Hluti af fjármagni sem safnaðist við sölu á sólmyrkvagleraugum hans rann beint til fræðslustarfs fyrir börn og ungmenni og gerði kaup á sjónaukunum möguleg.

Aðstandendur verkefnisins vonast til þess að nýi tækjabúnaðurinn eigi eftir að nýtast vel í skólastarfinu og kveikja fjölmargar spurningar hjá framtíðarvísindamönnum svæðisins.

Hljómahöll
Hljómahöll