American Airlines snýr aftur: Hefur daglegt flug milli KEF og Fíladelfíu sumarið 2027
Bandaríska flugfélagið American Airlines tilkynnti í dag um nýja áætlunarleið milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Fíladelfíu (PHL), sem hefst 27. maí 2027. Flogið verður daglega yfir sumartímann á Airbus A321neo flugvél sem tekur 196 farþega.
American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru. Félagið hóf flug milli KEF og Dallas-Fort Worth 2018 og áformaði að bæta Fíladelfíu við sem áfangastað 2020. Ekkert varð af því vegna heimsfaraldursins og hætti félagið einnig flugi milli Íslands og Dallas.
„Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum American Airlines aftur velkomið til okkar og fögnum þessari ákvörðun,“ segir Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskipta á KEF. „Það er ánægjulegt að fá félagið aftur í flugvallarsamfélagið okkar á vellinum. Þessi nýja leið styrkir tengingu okkar við Norður-Ameríku og sýnir að þetta stóra flugfélag hefur sterka trú á áfangastaðnum Íslandi.“
„Við erum afar spennt að snúa aftur til Íslands með nýju flugi milli KEF og Fíladelfíu,“ segir José A. Freig, framkvæmdastjóri alþjóðlegra rekstrarmála og samstarfsaðila hjá American Airlines. „Með þessari nýju leið fá farþegar frá Íslandi og Norðurlöndunum greiðan aðgang að einum ört vaxandi tengiflugvelli okkar í Bandaríkjunum. Frá Fíladelfíu geta þeir ferðast áfram til meira en 100 áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin og til annarra heimshluta.“








