Heimilislegt Bistro við Garðskaga
Fjölskyldan sem stökk af stað og opnaði Brim Bistro
Nýjasti veitingastaður Suðurnesjabæjar, Brim Bistro á Lighthouse Inn við Garðskaga, hefur farið frábærlega af stað. Það sem byrjaði sem hálfgert grín í maí varð að veruleika tveimur mánuðum síðar. Veitingastaðurinn er rekinn af hjónunum Arnari Má Halldórssyni og Birnu Ármey Þorsteinsdóttur ásamt syni þeirra, Ármanni Guðna.
Við tókum Arnar Má tali um hvernig ævintýrið hófst, matseðilinn sem matgestir bóna diskana eftir og framtíðaráform fjölskyldunnar.
Hálfgert djók sem varð að veruleika
Hverjir standa á bak við Brim Bistro og hvernig kviknaði hugmyndin?
„Það er ég, Arnar Már Halldórsson, konan mín Birna Ármey Þorsteinsdóttir og strákurinn okkar, Ármann Guðni. Það hefur verið draumur hjá konunni minni í langan tíma að prófa að reka veitingastað. Við komum hingað í góðu veðri í maí, sátum hérna frammi og heyrðum í þeim sem reka hótelið. Þau sögðu okkur að veitingastaðurinn sem var hérna væri nýlokaður. Við spurðum í hálfgerðu djóki hvort við mættum taka við en áður en við vissum af var farið yfir málin og við boðin velkomin að reyna!“
Og þið stukkuð á tækifærið?
„Konan mín vildi hoppa á þetta strax. Ég sagði að við þyrftum aðeins að sofa á þessu, en tveimur dögum seinna hringdi ég í Gísla Heiðarsson, sem á hótelið. Hann kom með tilboð og við byrjuðum strax að safna leyfum og koma okkur í gang.“
Stórir skammtar og sósur sem fólk skrapar upp til síðasta dropa
Hvers konar matseðil bjóðið þið upp á?
„Staðurinn heitir Brim Bistro og við bjóðum upp á heimilislegan mat. Við erum með mjög stóran matseðil: panini, smørrebrød, hamborgara, pastasalöt, fiskrétti, plokkfisk og lambafillé.
Flestar uppskriftirnar eru frá konunni minni og allar sósur gerir hún alveg frá grunni. Við erum líka í samstarfi við Týnda bakaríið sem gerir allt okkar brauðmeti, hamborgarabrauðin, panini-brauðin og rúgbrauðið hjá þeim er alveg sér á báti.“
Hvernig hefur fólk verið að taka í matinn?
„Ekkert nema vel. Sérstaklega lambafilléið, saltfiskurinn, kjötsúpan og þorskurinn á pönnunni hafa slegið í gegn. Ég hef meira að segja séð að fólk er farið að biðja um aukaskeiðar til að geta klárað sósuna sem kemur með þorskinum.
Meginreglan okkar er að hafa sanngjarnt verð og stóra skammta. Við viljum ekki að fólk fari svangt héðan. Maður hefur farið á veitingastaði þar sem búið er að skera allt niður, en við viljum frekar hafa þetta vel útilátið.“
Fjölskyldan í eldhúsinu
Hver er það sem stendur við pönnurnar?
„Birna, konan mín, á fimm börn og hefur alltaf verið frábær kokkur. Við erum ekkert lærð í þessu, en hún elskar að elda og finnst gaman í eldhúsinu. Flestar uppskriftirnar eru hennar, fyrir utan saltfiskréttinn sem er uppskrift frá mömmu minni og heitir í höfuðið á henni.
Í dag er konan mín yfirkokkur og stýrir öllu, en Ármann sonur okkar sér um grillið, ofninn og alla aðalréttina.“
Uppselt næstum alla daga frá verslunarmannahelgi
Hvernig hefur gengið frá því þið opnuðuð?
„Við opnuðum 16. júlí. Við vorum með „soft opening“ á laugardeginum áður sem gekk misvel en við höfðum aldrei unnið í veitingaeldhúsi áður. En við lærðum rosalega mikið af því og þegar við opnuðum opinberlega á sunnudeginum gekk allt mjög vel og enginn kvartaði.
Fyrst þurfti ekkert að bóka borð, en núna verður fólk helst að bóka. Það er búið að vera fullt hjá okkur næstum alla daga frá verslunarmannahelgi og við höfum þurft að vísa fólki frá.“
Hvað getið þið tekið á móti mörgum?
„Það eru sæti fyrir 55 manns, en við miðum yfirleitt við 50 manns á kvöldi. Þetta er enn þá aukavinna hjá okkur, við mætum hingað beint eftir okkar venjulegu vinnu, þannig að 50 aðalréttir á kvöldi er alveg hæfilegt álag fyrir okkur í eldhúsinu eins og er.“
Enskt boltatilboð og pizzur á næsta leiti
Hver eru framtíðaráformin hjá Brim Bistro?
„Eldhúsið er opið frá 17:00 til 21:00 á virkum dögum fyrir aðalréttina. En um helgar ætlum við að sýna enska boltann og opna fyrr, allt eftir því hvenær leikirnir byrja. Þá verðum við með sértilboð á drykkjum og hamborgurum.
Í byrjun september fáum við svo pizzuofn og þá bætast pizzur við matseðilinn; bakaríið ætlar líka að gera pizzudeigið fyrir okkur. Hugmyndin í framtíðinni er svo að bjóða upp á hlaðborð öðru hvoru, eins og pizzuhlaðborð eða almennan heimilismat eins og kótilettur í raspi eða Cordon Bleu. Það er margt skemmtilegt á teikniborðinu,“ segir Arnar Már Halldórsson að endingu.









