Jarðskjálftahrina við Eldey
Í nótt kl. 03:38 hófst jarðskjálftahrina um 26 km VSV við Eldey á Reykjaneshrygg, með skjálfta af stærð 4,1. Hafa tæplega 100 skjálftar mælst í hrinunni og sumir um og yfir 3 að stærð. Síðast varð skjálfti stærri en 4 á þessum slóðum þann 23. mars sl. og í byrjun febrúar var kröftug hrina á svæðinu,
Jarðskjálftahrinan er á Norð-Atlantshafshryggnum og hluti af flekahreyfingum þar og eru jarðskjálftahrinur því algengar á þessum slóðum.







