Íþróttir

Vegalengdir fyrir alla fjölskylduna í Ljósanæturhlaupinu
Mánudagur 24. ágúst 2026 kl. 11:22

Vegalengdir fyrir alla fjölskylduna í Ljósanæturhlaupinu

Ljósanæturhlaupið verður á sínum stað að vanda og verður miðvikudaginn 2. september kl. 18.30. Rásmark er hjá Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ, (Innri Njarðvík) og verður hlaupið um götur Reykjanesbæjar.

Vegalengdir eru fyrir alla Fjölskylduna og hluti af mótsgjaldi fer í góðan málstað.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

500 kr. af hverri skráningu renna í Minningarsjóð Ölla. Hann styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.

Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað.

Hægt er að skoða kort af leiðunum á skráningarsíðu hlaupsins, á facebook síðu „Vikar Sigurjónsson“ og við rásmark.

Keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3,5 km, 7 km og 10 km.

Flögu tímamæling verður notuð í Ljósanæturhlaupinu í öllum vegalengdum.

Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11, 260 Reykjanesbæ.

Búnings-og sturtuaðstaða er í Stapalaug. Reykjanesbær býður þátttakendum í sund að hlaupi loknu.

Dagskrá og tímasetningar:

Ræsing í 10 km kl. 18:30

Ræsing í 7 km kl. 18:35

Ræsing í 3,5 km kl. 18:40

Verðlaunaafhending verður um kl. 19:50.

Verðlaun:

Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 og 10 km. og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km. 

Í 3,5 km. eru veitt verðlaun fyrir 15 ára og yngri og 16 ára og eldri.

Glæsileg útdráttarverðlaun sem dregin verða úr nöfnum allra þátttakenda.

Þátttökugjald og skráning

3,5 km: 2.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.500 fyrir 14 ára og yngri.

7 km og 10 km: 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 2.000 fyrir 14 ára og yngri.

Athugið að skráningargjald hækkar um 1.000 fyrir alla flokka ef skráð er eftir kl 23.59 mánudaginn 31. ágúst.

Við hvetjum alla til að tryggja sér skráningu á netskraning.is til að forðast óþarfa stress, segir í tilkynningu frá Vikari Sigurjónssyni, mótshaldara.

Bílakjarninn
Bílakjarninn