Glæsilegur Njarðvíkursigur
Njarðvíkingar buðu upp á stórleik í rigningu og vindi á JBÓ-vellinum í dag þegar þeir skelltu gestunum frá Húsavík, Völsungi, með fjórum mörkum gegn engu í Lengjudeild karla.
Veðrið var ekki að leika við leikmenn og gerði mönnum erfitt fyrir og leikurinn fór hægt af stað. Þegar heimamenn fundu taktinn var ekki aftur snúið, og tvíeykið Bragi Karl Bjarkason og Oumar Diouck sá um að afgreiða leikinn með tveimur mörkum hvor.
14. mín (1-0): Bragi Karl Bjarkason afgreiddi knöttinn í netið af öryggi eftir þunga sókn þar sem Völsungar reyndi að bægja frá.
Njarðvíkingar sóttu af þunga og áttu tvær hættulegar tilraunir sem vörn Völsungs bægði frá. Boltinn hrökk loks til Braga Karls Bjarkasonar sem afgreiddi hann af öryggi í netið.
32. mín (2-0): Aron Einarsson kom boltanum á Oumar Diouck. Skot hans fór af varnarmanni og framhjá markverði Húsvíkinga.
51. mín (3-0): Bragi Karl Bjarkason kórónaði sína frammistöðu með glæsilegu marki. Oumar lagði boltann á Braga sem lét vaða af tæplega 30 metra færi og sendi boltann rakleitt í vinkilinn.
60. mín (4-0): Oumar Diouck stökk manna hæst í teignum og stangaði boltann af krafti í netið eftir fyrirgjöf.
Yfirburðir frá upphafi til enda
Völsungar áttu afskaplega erfitt uppdráttar í bleytunni í Njarðvík í dag. Þó þeir hafi fengið vindinn með sér í seinni hálfleik náðu þeir aldrei að ógna sigri heimamanna. Njarðvík hélt áfram að skapa sér hættuleg færi og settu boltann tvívegis í mark andstæðinga en dæmdir rangstæðir.
Niðurstaðan var 4-0 sigur Njarðvíkinga.








