Ljósanæturhlaupið framundan: Hlaupið fyrir góðan málstað og ókeypis í sund á eftir
Ljósanæturhlaupið fer fram miðvikudaginn 2. september næstkomandi í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ. Vikar Sigurjónsson heldur utan um framkvæmd hlaupsins, sem hentar allri fjölskyldunni.
Rásmark og endamark verða við Stapalaug, Dalsbraut 11 í Innri-Njarðvík. Reykjanesbær býður öllum þátttakendum í sund í Stapalaug að hlaupi loknu, þar sem búnings- og sturtuaðstaða verður í boði.
Tímasetningar og vegalengdir
Boðið er upp á þrjár vegalengdir og verður notast við flögutímamælingu:
-
10 km: Ræsing kl. 18:30
-
7 km: Ræsing kl. 18:35
-
3,5 km: Ræsing kl. 18:40
-
Verðlaunaafhending: Að hlaupi loknu, um kl. 19:50.
Nýjar hlaupaleiðir eru um götur bæjarins og eru þátttakendur hvattir til að kynna sér kort af leiðunum á skráningarsíðunni, Facebook-síðu Vikars Sigurjónssonar eða við rásmarkið áður en lagt er af stað.
Styrkja Minningarsjóð Ölla
500 krónur af hverri skráningu renna óskertar í Minningarsjóð Ölla. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem eiga þess ekki kost vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Verðlaun og skráning
Veitt verða verðlaun fyrir besta árangur í öllum aldursflokkum í 7 km og 10 km. Í 3,5 km hlaupinu er keppt í tveimur flokkum: 15 ára og yngri ásamt 16 ára og eldri. Þá verða dregin út glæsileg útdráttarverðlaun úr hópi allra þátttakenda.
| Vegalengd | 15 ára og eldri | 14 ára og yngri |
| 3,5 km | 2.000 kr. | 1.500 kr. |
| 7 km og 10 km | 3.000 kr. | 2.000 kr. |
Skráning fer fram á netskraning.is. Athugið að skráningargjald hækkar um 1.000 krónur í öllum flokkum eftir kl. 23:59 mánudaginn 31. ágúst.





