MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Viðskipti

Bjóða til afmælisveislu í útibúi Landsbankans í Krossmóa
Miðvikudagur 19. ágúst 2026 kl. 16:35

Bjóða til afmælisveislu í útibúi Landsbankans í Krossmóa

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00. Á Suðurnesjum er útibú Landsbankans í Krossmóa í Reykjanesbæ.

Landsbankinn var stofnaður árið 1886 og hefur því verið hluti af íslensku samfélagi í 140 ár. Þetta eru sömuleiðis stór tímamót fyrir TM sem fagnar 70 ára afmæli. Það er því sannarlega tilefni til að gera sér glaðan dag saman.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Boðið verður upp á léttar veitingar og góða stemningu í 30 útibúum Landsbankans víðs vegar um land. Við hvetjum viðskiptavini til að líta við og fagna þessum tímamótum með okkur. Útibúin á Breiðdalsvík, Djúpavogi, Kópaskeri og Skagaströnd eru ekki opin á fimmtudögum og því verða ekki veisluhöld þar í þetta sinn.

Kíktu við í útibú nálægt þér og fagnaðu með okkur.

Við hlökkum til að sjá þig!

Bílakjarninn
Bílakjarninn