Landsbankinn

Fréttir

Tæknifyrirtækin Verne og Ofar efla raungreinakennslu í Háaleitisskóla
Unnar Stefánsson skólastjóri Háaleitisskóla, Ísleifur Örn Guðmundsson viðskiptaþróunarstjóri Ofar og Styrmir Hafliðason framkvæmdastjóri Verne á Íslandi með hluta gjafanna sem voru afhentar í dag. VF/hilmarbragi
Föstudagur 21. ágúst 2026 kl. 16:08

Tæknifyrirtækin Verne og Ofar efla raungreinakennslu í Háaleitisskóla

Tæknifyrirtækin Verne og Ofar hafa tekið höndum saman og fært Háaleitisskóla í Reykjanesbæ veglega gjöf til að efla tækni- og vísindakennslu eldri nemenda skólans. Gjöfin er liður í að auðvelda nemendum aðgengi að stafrænu námi og dýpka skilning þeirra á raungreinum með verklegri reynslu.

Meðal þess búnaðar sem skólinn móttekur eru 3D-gleraugu, 3D-prentarar og fartölvur. Háaleitisskóli hefur á undanförnum misserum unnið að því að byggja upp aðstöðu til vélmennafræði, tvívíðs og þrívíðs prentverks ásamt öðrum tæknilegum námsgögnum og kemur nýi búnaðurinn til með að styðja þétt við þá vegferð. Verkefnið var unnið í samstarfi við tæknifyrirtækið Ofar, sem tók þátt í að safna saman þeim tækjabúnaði sem nýtist nemendum skólans í verklegu námi.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Lögðu áherslu á þarfir skólans

„Að styðja við menntun í nærumhverfinu er ein skilvirkasta leiðin til að leggja okkar af mörkum til samfélagsins. Verkefnið kviknaði út frá því að hlusta á þarfir skólans og við erum ánægð að geta auðveldað nemendum aðgengi að stafrænum tækjum sem efla vísinda- og tækninám,“ segir Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne á Íslandi.

Ísleifur Örn Guðmundsson, viðskiptaþróunarstjóri Ofar, tekur í sama streng: „Hjá Ofar teljum við mikilvægt að styðja við nærsamfélagið og hjálpa ungu fólki að öðlast hagnýta reynslu af tækni. Við erum stolt af því að standa að þessu með Verne og leggja okkar af mörkum í starfi Háaleitisskóla.“


Jólin komu snemma í Háaleitisskóla í ár og Unnar skólastjóri var spenntur að kíkja í pakkana með nemendum skólans. VF/myndir: Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn