Fréttir

Atvinnu- og framkvæmdaþing: Tækifæri og uppbygging í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 20. ágúst 2026 kl. 11:01

Atvinnu- og framkvæmdaþing: Tækifæri og uppbygging í Reykjanesbæ

Forsvarsmenn fjölmargra öflugra fyrirtækja, meðal annars Samherja, HS Veitna, atNorth, Verne, Festi, Fagkaupa og BLUE, taka þátt í atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar sem fram fer í Stapanum í Hljómahöll miðvikudaginn 16. september.

Á þinginu verður sjónum beint að atvinnulífi, framkvæmdum og þeirri umfangsmiklu uppbyggingu sem fram undan er í Reykjanesbæ. Fjallað verður um nýjar atvinnulóðir, byggingarland og helstu uppbyggingarsvæði sveitarfélagsins, auk þess sem fyrirtæki kynna framkvæmdir sínar, umsvif og áform næstu ára.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Það er gríðarlega margt að gerast í Reykjanesbæ og endalaust af tækifærum. Með þessu þingi viljum við draga betur fram þá uppbyggingu sem þegar er hafin, kynna það sem er í farvatninu og skapa vettvang þar sem atvinnulífið, fjárfestar og sveitarfélagið geta komið saman og rætt næstu skref. Reykjanesbær er bær tækifæranna og ég hvet sem flesta til að koma á þingið og sjá það með eigin augum,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í tilkynningu.

Fjölbreytt dagskrá og öflug fyrirtæki

Þingið hefst kl. 14:00 með setningu Vilhjálms Árnasonar bæjarstjóra. Að því loknu fara Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs, yfir stöðu atvinnulífsins í Reykjanesbæ, framtíðartækifæri, laust byggingarland, nýjar atvinnulóðir, komandi framkvæmdir og helstu uppbyggingarsvæði.

Þá taka við örerindi frá Samherja, HS Veitum, Hótel Keflavík, atNorth og Isavia.

Eftir kaffihlé fara fram pallborðsumræður með forsvarsmönnum fyrirtækja sem stunda atvinnurekstur í sveitarfélaginu.

Í pallborðinu taka þátt Styrmir Hafliðason, framkvæmdastjóri Verne, Magnús Þorsteinsson, forstjóri BLUE, Haraldur Líndal Pétursson, forstjóri Fagkaupa, Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs, Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalíf, og Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Reykjanes Investment.

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi verða einnig með erindi og á þinginu verður nýtt atvinnuvefsvæði Reykjanesbæjar kynnt í fyrsta sinn. Fundarstjóri verður Sigrún Inga Ævarsdóttir, samskiptastjóri HS Veitna.

Allir velkomnir

Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar fer fram í Stapanum í Hljómahöll miðvikudaginn 16. september kl. 14:00.

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fulltrúa fyrirtækja af Suðurnesjum eða annars staðar frá. Aðgangur er gjaldfrjáls en sætaframboð er takmarkað og því er nauðsynlegt að skrá sig fyrir fram.

Skráning á atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar:
https://atvinna-framkvaemd.multiscreensite.com/#Location

Bílakjarninn
Bílakjarninn