Íslandsbanki
Íslandsbanki

Fréttir

Brunavarnir Suðurnesja fá nýjan stigabíl í október
Fimmtudagur 20. ágúst 2026 kl. 11:24

Brunavarnir Suðurnesja fá nýjan stigabíl í október

Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri og Rúnar Eyberg Árnason varðstjóri hjá Brunavörnum Suðurnesja eru nú í Glasgow í Skotlandi til að taka á móti nýjum stigabíl embættisins. Verkefnið hefur verið í undirbúningi í um tvö ár, en skrifað var undir kaupsamning við fyrirtækið Emergency One í nóvember 2024. Bíllinn er væntanlegur til landsins í október.

Aukin viðbragðsgeta og betra öryggi

Nýi bíllinn er af gerðinni Scania 460P með yfirbyggingu frá Magirus/Emergency One og er búinn 32 metra stiga.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Hann leysir af hólmi eldri körfubíl árgerð 1996, sem keyptur var notaður frá Svíþjóð og hefur þjónað Brunavörnum Suðurnesja frá árinu 2007. Endurnýjunin er sögð mikilvægur liður í að efla tækjakost slökkviliðsins, auka viðbragðsgetu og bæta vinnuaðstöðu og öryggi slökkviliðsmanna við björgunar- og slökkvistörf.

Bílakjarninn
Bílakjarninn