Fréttir

Varnaræfingunni Norður-Víkingur hleypt af stokkunum
Ljósmyndir: Anton Brink
Föstudagur 21. ágúst 2026 kl. 09:54

Varnaræfingunni Norður-Víkingur hleypt af stokkunum

Varnaræfingunni Norður-Víkingur var formlega hleypt af stokkunum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í vikunni að viðstöddum fjölmörgum innlendum og erlendum gestum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins, sem jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, fluttu ávörp á opnunarathöfninni. Matthew Whitaker, fastafulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu, var einnig viðstaddur opnunarathöfnina. Frá þessu er greint á vef stjórnarráðsins.

„Varnarsamningurinn við Bandaríkin á 75 ára afmæli í ár og það er við hæfi að minnast þessara tímamóta með því að láta hendur standa fram úr ermum og sýna okkar nána samband í verki. Varnarsamningurinn hefur staðist tímans tönn vegna þess að hann hefur þróast til þess að mæta áskorunum hvers tíma. Norður-Víkingur er hluti af þeirri þróun,“ sagði Þorgerður Katrín í ávarpi sínu. „Æfingin fléttar saman meginstoðirnar tvær í vörnum Íslands; varnarsamninginn og aðildina að Atlantshafsbandalaginu. Hún sýnir fram á að skuldbindingar okkar gagnvart hvert öðru eru lifandi, enda byggjast þær á trausti, vináttu, sameiginlegum gildum og hagsmunum.“

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26


Fastafulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu, Matthew Whitaker, fundaði í heimsókn sinni til Íslands með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Meðal umræðuefna voru málefni Atlantshafsbandalagsins, þróun mála á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og traust og náið samband Íslands og Bandaríkjanna, en í ár eru 75 ár liðin frá því að tvíhliða varnarsamningur ríkjanna var undirritaður. Einnig var rætt um stöðu mála í Úkraínu og stuðning við áframhaldandi varnarbaráttu. Whitaker heimsótti einnig íslensk fyrirtæki sem bjóða upp á tvínota tækni sem nýtist í öryggis- og varnarmálum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, flutti ávarp.

Bílakjarninn
Bílakjarninn