MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Grunnskólastarf hafið í Grindavík: Ábyrgur undirbúningur og öruggt umhverfi á Ásabraut
Þriðjudagur 25. ágúst 2026 kl. 11:48

Grunnskólastarf hafið í Grindavík: Ábyrgur undirbúningur og öruggt umhverfi á Ásabraut

Grunnskólinn í Grindavík var settur að nýju í skólahúsnæðinu við Ásabraut í morgun, þriðjudaginn 25. ágúst. Greint var frá farsælli opnun leikskólastarfs í Laut fyrr í mánuðinum og nú hefur næsta markvissa skrefið verið stigið í endurreisn grunnþjónustu sveitarfélagsins. Nemendur við skólann eru 26 á öllum skólastigum, segir í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.

Við skólasetninguna sagði Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri meðal annars:

„Í fámenninu felast mörg tækifæri, til þess að kynnast betur, sjá hvert annað og standa saman. Og ég held að einmitt þar liggi einn af okkar styrkleikum. Við erum skólasamfélag þar sem allir skipta máli.“

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Mikil og vönduð vinna hefur átt sér stað á síðustu mánuðum við að gera skólabygginguna við Ásabraut tilbúna. Lokið hefur verið við umfangsmiklar burðarþolsstyrkingar á vesturálmu skólans, ásamt því að gólf hafa verið endurnýjuð og loftræstikerfi bætt til að tryggja fyllsta rekstraröryggi. Utanhússklæðningu skólans hefur einnig verið lokið. Allar sprunguviðgerðir á skólalóðinni og í nágrenni hennar eru fullfrágengnar og hættusvæði í bæjarlandinu eru tryggilega afgirt og vöktuð af slökkviliði bæjarins.

„Við hlökkum mikið til að bjóða nemendur okkar velkomna, það verður yndislegt að fylla skólann lífi og gleði á ný,“ segir Guðlaug Erlendsdóttir, skólastjóri samrekins leik- og grunnskóla Grindavíkur. Allur undirbúningur hefur verið unninn af mikilli alúð og vandvirkni og það er okkur mikilvægt að taka á móti börnunum í öruggu, hlýju og traustu umhverfi. Okkur er mjög umhugað um líðan barnanna og hvernig við getum stutt þau sem best í þessari endurkomu. Mesta áfallið fyrir mörg þeirra var að missa daglegt samband við vini, skólann og samfélagið sitt og er upphaf skólastarfs því mikilvægt skref til endurreisnar samfélagsins í Grindavík.“

Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að skólahald í Grindavík er skipulagt og vaktað ferli. Öryggismál hafa verið samstillt í nánu samstarfi við almannavarnir og rýmingaráætlanir liggja fyrir og verða æfðar með starfsfólki og nemendum strax í upphafi skólaársins.

„Þetta eru mikil vatnaskil í okkar málum og stórt skref fram á við í að fækka óvissuþáttum hjá okkar fólki, varða leiðina heim og tryggja framtíð Grindavíkur“, segir Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur. „Okkar afstaða er skýr: Þau börn sem dvelja í bænum eru öruggari og betur vöktuð inni í skipulögðu og faglega stýrðu skólastarfi heldur en í eftirlitslausum frítíma. Við erum að sýna að það er hægt að byggja upp samfélag á ábyrgan hátt í sátt og af virðingu við náttúruöflin.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn