SSS leggst af hörku gegn sameiningu Lögreglunnar á Suðurnesjum
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur sent frá sér afdráttarlausa umsögn þar sem því er eindregið hafnað að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði lagt niður sem sjálfstætt embætti eða sameinað öðru lögregluembætti. Svæðið gegni einstöku og ómissandi hlutverki í þjóðaröryggi Íslands vegna landamæragæslu á Keflavíkurflugvelli, almannavarna og viðbragða við jarðhræringum á Reykjanesskaga.
Stjórn SSS bendir á að viðbragðsþekking og staðbundin reynsla hafi reynst fullkomlega nauðsynleg á síðustu árum. Að færa yfirstjórn og ákvarðanatöku í burtu mun að mati sambandsins skerða viðbragðsgetu og draga úr öryggi. Þess í stað er skorað á ríkisvaldið að tryggja embættinu viðunandi starfsaðstöðu og reisa nýja lögreglustöð í Reykjanesbæ eins og lengi hefur staðið til.








