Safnahelgi
Safnahelgi

Aðsent

Hvernig er að vera ungmenni í Suðurnesjabæ í dag?
Þriðjudagur 6. október 2026 kl. 13:19

Hvernig er að vera ungmenni í Suðurnesjabæ í dag?

Við erum hópur ungmenna úr bæði Garði og Sandgerði. Við höfum alist upp hér, gengið í skólana hér, æft íþróttir hér, eignast vini hér og tekið þátt í samfélaginu okkar. Suðurnesjabær er heimilið okkar og okkur þykir vænt um það.

Að vera ungmenni í Suðurnesjabæ getur verið frábært. Hér er gott fólk, öflugt íþrótta- og tómstundastarf og samfélag sem við vitum að getur verið ótrúlega sterkt ef allir standa saman.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

En vá, hvað við erum orðin þreytt. Þreytt á rígnum. Þreytt á niðurtalinu. Þreytt á því að heyra Garð og Sandgerði sett upp hvort á móti öðru. Og kannski mest þreytt á því hvernig fullorðið fólk talar stundum hvert við annað og hvert um annað þegar kemur að málefnum sveitarfélagsins. Alltaf er verið að hjóla í manninn en ekki málefnið.

Við erum eitt sveitarfélag. Það eru liðin átta ár frá sameiningu Garðs og Sandgerðis. Í sveitarstjórnarkosningunum í maí var mikið talað um samstöðu og framtíð Suðurnesjabæjar. „Tvær rætur – eitt samfélag“, „Saman mótum við framtíðina“, „Sterkari saman“ og „Saman til sóknar“ voru kjörorð flokkanna í kosningunum.

Falleg orð. En falleg orð skipta litlu máli ef þeim fylgja ekki gjörðir.

Nú stendur sveitarfélagið frammi fyrir stórri ákvörðun um framtíð íþróttaaðstöðu. Ákvörðun sem snýst ekki bara um hvar eigi að setja gervigras. Hún snýst um miklu meira en það. Hún snýst um hvernig Suðurnesjabær á að líta út eftir 20 eða 30 ár.

Við viljum lokaða gervigrashöll á svæðinu milli byggðakjarnanna. Við vitum vel að slík framkvæmd kostar meira í dag. Við erum ekki að halda öðru fram. En stundum þarf að þora að horfa lengra en bara til dagsins í dag. Bæjarstjórn má ekki bara horfa til næstu fjárhagsáætlunar eða næsta kjörtímabils. Hún þarf líka að horfa til næstu 20, 30 og 40 ára, því eftir 30 ár verðum það við sem búum hér.

Við sem erum ung í dag verðum þá fólkið sem rekur fyrirtækin, vinnur í skólunum, þjálfar börnin, situr í stjórnum félaganna, kaupir húsnæði, greiðir gjöld til sveitarfélagsins og elur mögulega upp næstu kynslóð Suðurnesjabæjar. Við munum erfa þær ákvarðanir sem eru teknar í dag.

Þetta er meira en fótboltavöllur

Lokuð gervigrashöll væri ekki bara hús fyrir fótbolta.

Fótbolti er stór hluti af íþróttastarfi í Suðurnesjabæ og með lokaðri höll væri hægt að æfa allt árið óháð veðri. Við sem búum hér vitum hvernig íslenskur vetur er: rok, rigning, kuldi og snjór. Við vitum líka að barn sem mætir þrisvar í viku á fótboltaæfingu fyrst og fremst af því að því finnst gaman er ekki endilega að fara að mæta á gervigrasvöllinn til að fara á æfingu úti í kulda og roki í janúar.

Það eru einmitt börnin sem við megum ekki gleyma. Ekki bara þau sem stefna á afreksíþróttir, heldur líka barnið sem mætir til að hitta vini sína. Barnið sem þarf hreyfinguna. Barnið sem finnur sína félagslegu tengingu á æfingu. Barnið sem þarf einfaldlega einhvers staðar að tilheyra. Íþróttir snúast um miklu meira en bara árangur.

Og höllin þyrfti ekki bara að þjóna börnum eða fótboltafólki. Hún gæti nýst fólki á öllum aldri og með ólík markmið með hreyfingu, hvort sem fólk æfir til keppni, heilsu, félagslífs eða einfaldlega sér til ánægju. Þar væri einnig hægt að skapa aðstöðu sem gæti nýst fólki með fötlun til íþróttaiðkunar og hreyfingar.

Ávinningurinn myndi heldur ekki stoppa við dyrnar á höllinni. Með því að færa stóran hluta knattspyrnunnar þangað myndi losna um pláss í íþróttahúsunum okkar. Það gæti skapað meira svigrúm fyrir körfubolta, handbolta, júdó og aðrar íþróttir sem þurfa á húsunum að halda.

Íþróttahúsin okkar eru mikið nýtt. Það er í raun frábært vandamál að glíma við, fólk vill hreyfa sig.

En hugsið ykkur hvað við gætum gert ef við hefðum meira pláss. Fleiri æfingar, fleiri íþróttir, meira framboð, aðgengilegri hreyfing, fleiri möguleikar fyrir börn, ungmenni, fullorðna, eldra fólk og fatlað fólk. Höllin væri því ekki bara fjárfesting í fótbolta. Hún væri fjárfesting í heilsu, hreyfingu og samfélaginu öllu.

Hvar eigum við að sameinast ef ekki í miðjunni?

Fyrir okkur snýst hugmyndin um að byggja á milli byggðarkjarnanna líka um eitthvað miklu stærra, sameiningu. Ef markmiðið er í alvörunni að Garður og Sandgerði verði eitt samfélag þurfum við einhvern tímann að byrja að byggja eitthvað sem tilheyrir ekki öðrum kjarnanum, eitthvað sem er okkar allra.

Við getum haldið áfram næstu áratugina að rífast um hvor byggðakjarninn fær hvað eða við getum ákveðið að einhvers staðar þurfi nýja Suðurnesjabæjarsamfélagið að byrja.

Af hverju ekki í miðjunni?

Við viljum geta séð framtíðina okkar hér

Það er kannski erfiðasti hlutinn fyrir okkur að skrifa þetta: Það er ekki alltaf auðvelt að vera ungmenni í Suðurnesjabæ og hlusta á umræðuna um sveitarfélagið okkar þessa dagana. Við erum ekki beint að kafna úr jákvæðni.

Þegar umræðan einkennist af rifrildi, ríg og neikvæðni verður tilhugsunin um að vera hér til framtíðar ekki jafn spennandi og hún ætti að vera. Við viljum búa hér. Við viljum geta hugsað okkur að kaupa okkar fyrsta húsnæði hér, stofna fjölskyldu hér, ala börnin okkar upp hér, sjá þau ganga í sama skóla og við, æfa íþróttir og taka þátt í samfélaginu. En þá þurfum við að sjá að sveitarfélagið sé líka að hugsa um okkar framtíð.

Við gerum okkur grein fyrir því að fólk getur haft ólíkar skoðanir á því hvernig best sé að byggja upp sveitarfélagið. En þegar teknar eru ákvarðanir sem móta samfélagið til áratuga skiptir máli að horfa til þeirra sem eiga eftir að búa við afleiðingar þeirra lengst. Við erum unga fólkið sem mun lifa með þeim ákvörðunum sem eru teknar í dag. Þess vegna vonumst við til að þegar horft er til framtíðar verði líka hlustað á þá sýn sem við höfum á samfélagið sem við viljum búa í.

Við erum úr Garði og Sandgerði. Sum okkar hafa sterkar rætur öðrum megin, önnur hinum megin.

En það sem við eigum sameiginlegt er: Við erum unga fólkið í Suðurnesjabæ. Við viljum ekki erfa ríginn. Við viljum erfa samfélag sem hafði hugrekki til að horfa lengra en til næstu kosninga. Samfélag sem ákvað að fjárfesta í börnum og ungmennum. Samfélag sem hætti að spyrja: „Hvorum megin á þetta að vera?“ og byrjaði að spyrja: „Hvað er best fyrir Suðurnesjabæ til framtíðar?“

Því framtíðin sem þið eruð að taka ákvörðun um í dag er framtíðin okkar.

Heba Lind Guðmundsdóttir, 20 ára úr Garði

Lárus Einar Ólafsson, 17 ára úr Sandgerði

Hafþór Ernir Ólason, 20 ára úr Garði

Amelia Rún Fjeldsted, 22 ára úr Sandgerði

Bjarni Dagur Jónsson, 17 ára úr Garði

Elfar Þór Sæmundsson, 19 ára úr Sandgerði

Stefanía Lind Guðmundsdóttir, 18 ára úr Garði

Gunnlaugur Yngvi Elínarson, 18 ára úr Sandgerði

Hafdís Birta Hallvarðsdóttir, 22 ára úr Garði

Aleksandra Szymajda, 17 ára úr Sandgerði

Friðrik Smári Bjarkason, 23 ára úr Garði

Thelma Sif Róbertsdóttir, 17 ára úr Sandgerði

Brynjar Ægir Freysson, 18 ára úr Garði

Gunnar Karl Þorgeirsson, 18 ára úr Sandgerði

Hafþór Örvar Sveinsson, 21 árs úr Garði

Emilía Ósk Guðmundsdóttir, 18 ára úr Sandgerði

Bílakjarninn
Bílakjarninn