Gefnarborg tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna
Leikskólinn Gefnarborg í Garði í Suðurnesjabæ er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir framúrskarandi skólastarf. Tilnefningin er fyrir fjölbreytt og markvisst þróunarstarf þar sem læsi, skynjun, leikur, sköpun og útinám fléttast saman.
Í Gefnarborg hafa verið þróaðir starfshættir sem kenndir eru við læsistengda skynjun. Samkvæmt fréttatilkynningu um verðlaunin er áhersla lögð á að tengja þessa þætti saman með markvissum hætti í leikskólastarfinu.
Gefnarborg er einn þriggja skóla sem tilnefndir eru fyrir framúrskarandi skólastarf. Hinir eru Grundaskóli á Akranesi, fyrir fjölbreytt og gróskumikið þróunarstarf, og starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, fyrir þróun einstaklingsmiðaðs náms.
Íslensku menntaverðlaunin verða afhent á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Þau eru veitt í fjórum flokkum: fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun. Auk þess verða veitt sérstök hvatningarverðlaun án tilnefninga.
Fjórir kennarar eru tilnefndir fyrir framúrskarandi kennslu: Halldór Baldursson við Myndlistaskólann í Reykjavík, Jónína Lovísa Kristjánsdóttir við Egilsstaðaskóla og Múlaþing, Ragna Gunnarsdóttir við Flataskóla í Garðabæ og Sandra Ómarsdóttir við Seljaskóla í Reykjavík.
Í flokki þróunarverkefna eru tilnefnd verkefnin Samkennd og sjálfræði í Verzlunarskóla Íslands, Stilla – hæglátt leikskólastarf og Söngvavor, samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna.
Í flokki iðn- og verkmennta eru tilnefnd Menntaskólinn á Ísafirði fyrir verkefnið Tímatökuhúsið, höfundar námsefnisins Matreiðsla og Verkmenntaskólinn á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu.
Nánari upplýsingar um verðlaunin og tilnefningarnar má finna á vef Íslensku menntaverðlaunanna.






