Sigurganga Grindavíkurkvenna heldur áfram
Grindavíkurkonur eru enn ósigraðar eftir sex umferðir í Bónus-deildinni í körfu en þær unnu Njarðvík í Icemar höllinni í kvöld. Lokatölur 83-87 í líklega besta leik tímabilsins það sem af er. 42 stig hjá Brittany Dinkins dugðu ekki en hún skoraði helming stiga Njarðvíkinga.
Leikurinn var jafn allan tímann en heimakonur leiddu þó allan fyrri hálfleikinn þó munurinn hafi verið lítill.
Grindvíkingar unnu forskotið upp í þriðja leikhluta og komust meðal annars í 68:64. Dinkins var áfram í aðalhlutverki hjá Njarðvík og jafnaði með þriggja stiga körfu í 73:73 áður en Kristín Björk Guðjónsdóttir tryggði heimakonum tveggja stiga forskot fyrir lokafjórðunginn, 75:73.
Njarðvík skoraði fyrstu fjögur stig fjórða leikhluta og virtist í góðri stöðu í 79:73. Þá tók Grindavík við sér. Hulda Björk Ólafsdóttir skoraði sjö stig í tólf stiga áhlaupi gestanna sem breytti stöðunni í 79:85. Heimakonur voru án stiga í rúmar fjórar mínútur á þessum kafla.
Dinkins minnkaði muninn í þrjú stig með þremur vítum en Grindavík svaraði. Tegan Graham setti niður mikilvæga þriggja stiga körfu þegar rúmar tvær mínútur voru eftir og kom gestunum í 92:85.
Grindvíkingar með gríðarlega sterkt tríó með þær Abby Beeman, Faihiya og Ellen Nystrom, voru sterkari í síðari hálfleik og sigldu sigri í höfn í lokin með frábærum leik en saman skoruðu þær þrjár 67 af 87 stigum liðsins.
Það var úrslitakeppnisandi yfir þessum leik, tvö frábær lið að eigast við í bráðskemmtilegum og spennandi leik. Njarðvíkingar náðu fjórum þriggja stiga skotum í sömu sókninni þegar um hálf mínúta var eftir en ekki vildi boltinn í gegnum hringinn. Þristur þar hefði skilið eitt stig milli liðanna. Grindavík hélt haus í blálokin og innsiglaði sigur með frábærri körfu og einu vítaskoti frá Abby sem var með þrefalda tvennu, 21/12/14 og 3 stolna.
Grindavík er í efsta sæti með fullt hús stiga eftir sex umferðir. UMFN er í 3.-6. sæti með 8 stig.
Njarðvík-Grindavík 93-97 (23-21, 30-26, 22-26, 18-24)
Njarðvík: Brittany Dinkins 42/8 fráköst/10 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 11, Emma Grace Theódórsson 11/9 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 8/6 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 7/4 fráköst, Kristín Björk Guðjónsdóttir 7, Sara Björk Logadóttir 5, Krista Gló Magnúsdóttir 2, Aníta Rut Helgadóttir 0, Alexandra Eva Sverrisdóttir 0, Dagbjort Dora Kristmannsdottir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0.
Grindavík: Ellen Nystrom 23/6 fráköst, Farhiya Abdi 23/5 fráköst/5 stoðsendingar, Abby Claire Beeman 21/12 fráköst/14 stoðsendingar, Tegan Graham 14/4 fráköst, Hulda Björk Ólafsdóttir 9, Isabella Ósk Sigurðardóttir 4/5 fráköst/3 varin skot, Ólöf Rún Óladóttir 3, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jón Þór Eyþórsson, Sófus Máni Bender
Áhorfendur: 400.
Staðan:
1 Grindavík 6 6 0 554 - 436 12
2 Stjarnan 6 5 1 538 - 447 10
3 Haukar 6 4 2 518 - 452 8
4 Njarðvík 6 4 2 550 - 486 8
5 KR 6 4 2 527 - 533 8
6 Valur 6 4 2 478 - 431 8
7 Tindastóll 6 2 4 439 - 457 4
8 Keflavík 6 1 5 452 - 485 2
9 Ármann 6 0 6 453 - 557 0





