Blóðbankabíllinn í Reykjanesbæ 11. nóvember
Blóðbankabíllinn verður við KFC í Krossmóa í Reykjanesbæ miðvikudaginn 11. nóvember kl. 10:00-17:00.
Eins og segir í tilkynningu frá Blóðbankanum þá er bjóðgjöf lífgjöf og Suðurnesjafólk er hvatt til að gefa sér fáeinar mínútur og gefa blóð. Mikilvægt sé fyrir okkur öll að birgðirnar séu nægar yfir hátíðarnar og því upplagt að koma og gefa dýrmæta jólagjöf með blóðgjöf.





