Jóel
Jóel

Mannlíf

Hinsegin rannsóknir og list Nínu Sæmundssonar
Fimmtudagur 19. nóvember 2026 kl. 09:17

Hinsegin rannsóknir og list Nínu Sæmundssonar

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14:00 býður Listasafn Reykjanesbæjar til áhugaverðs viðburðar þar sem hinsegin fræði og listasaga mætast.

Ásta Kristín Benediktsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, mun fjalla um hinsegin rannsóknir, helstu viðfangsefni þeirra og hvernig hinsegin sjónarhorn geta varpað nýju ljósi á sögu, menningu og samfélag.

Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, mun beina sjónum að listakonunni Nínu Sæmundsson, fjalla um verk hennar og setja listsköpun hennar í víðara alþjóðlegt samhengi.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Viðburðurinn býður upp á spennandi samtal milli ólíkra fræðasviða og nýjar leiðir til að nálgast list og listasögu.

Öll velkomin!

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100