Hviða eignarhaldsfélag
Hviða eignarhaldsfélag

Mannlíf

Ár í Miðhúsum sýnd á Garðskaga á laugardag
Miðvikudagur 18. nóvember 2026 kl. 18:46

Ár í Miðhúsum sýnd á Garðskaga á laugardag

Heimildarmyndin Ár í Miðhúsum eftir Hilmar Braga Bárðarson og Hörð Gíslason verður sýnd á Byggðasafninu á Garðskaga laugardaginn 21. nóvember klukkan 14. Aðgangur er ókeypis en aðeins fimmtíu sæti eru í boði. Hvatt er til þess að sæti séu bókuð fyrirfram á póstfangið [email protected]

Myndin fylgir lífinu í Miðhúsum í Garði í gegnum árstíðirnar og segir sögu fjölskyldunnar sem þar hefur búið um kynslóðir. Torfi og Margrét settust þar að um 1940 og ólu upp fjórtán börn. Þau ráku um árabil stærsta kúabú Garðsins með um þrjátíu mjólkandi kýr.

Börnin tóku snemma þátt í bústörfunum en nutu jafnframt frelsis í fjörunni og við síkin. Í myndinni rifja þau upp bernskuna samhliða því sem fylgst er með sauðburði, heyskap og öðrum störfum á jörðinni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þótt kúabúskap sé lokið hefur fjölskyldan haldið húsunum og jörðinni við. Gamla fjósinu og hlöðunni hefur verið breytt í samkomustað þar sem ættin hittist meðal annars á ættarmótum og í skötuveislum. Afkomendur Torfa og Margrétar eru nú yfir tvö hundruð.

Í Miðhúsum eru einnig varðveittir um átta gamlir traktorar sem allir eru gangfærir og enn notaðir. Viðhald vélanna og húsanna skipar stóran sess í lífi fjölskyldunnar.

Myndin fjallar jafnframt um framtíð staðarins og vilja yngri kynslóða til að varðveita tengslin við jörðina, sögu fjölskyldunnar og arfleifð Torfa og Margrétar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100