Mannlíf

Sjö skáldkyrjur munu flytja ljóð sín í Konubókarstofu 19. nóvember kl.17-19
Fimmtudagur 12. nóvember 2026 kl. 04:05

Sjö skáldkyrjur munu flytja ljóð sín í Konubókarstofu 19. nóvember kl.17-19

Það má segja að 19. nóvember sé dagur okkar skáldkyrja og munum við halda áfram að ljóðast saman árlega á þeim degi um ókomna framtíð.

Í ár bjóðum við gesti velkomna í Konubókarstofu og hlusta á ljóðalestur á birtum og óbirtum ljóðum úr fórum okkar hver með sínum hættir.

Verið hjartanlega velkomin í kaffi og hlýða á upplestur!

Flytjendur eru þær Draumey Aradóttir, Gunnhildur Þórðardóttir, Helen Halldórsdóttir, Margrét Lóa Jónsdóttir, Rut Ríkey Tryggvadóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og Þórunn Valdimarsdóttir.

Allar hafa þær gefið út fjölda ljóðabóka, tekið þátt í mörgum upplestrum og fengið viðurkenningar og verðlaun.

Konubókastofa er að Túngötu 40 á Eyrarbakka.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100