Fyrirhuguð skráning Bláa Lónsins vekur heimsathygli
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins hf., var viðmælandi í viðskiptaþættinum Quest Means Business, á fyrsta degi almenns hlutafjárútboðs. Í viðtalinu sagði Sigríður Margrét m.a. útboðið vera tímamót þar sem verið væri að skrá eitt af undrum veraldar á íslenskan hlutabréfamarkað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa Lóninu.
Aðspurð hvers vegna félagið stefndi á markað nú sagði Sigríður Margrét tímann vera réttan. Félagið hugsaði til langs tíma og hefði skýra sýn á verðmætasköpun næsta áratugar, bæði fyrir fyrirtækið og Ísland sem áfangastað.
„Með skráningunni bjóðum við fjárfestum að taka þátt í vegferð Bláa Lónsins. Fjármagnið verður nýtt til að styðja við vöxt félagsins og fram undan eru mjög metnaðarfull uppbyggingarverkefni,“ sagði Sigríður Margrét.
Richard Quest, þáttastjórnandinn, vék að því hversu sterkt vörumerki Bláa Lónið væri fyrir Ísland. Sigríður Margrét tók undir það en benti einnig á að starfsemi félagsins næði langt út fyrir hið þekkta baðlón. Félagið starfaði á sviði heilsu- og vellíðunar um land allt og velgengni þess væri nátengd velgengni íslenskrar ferðaþjónustu.
„Við viljum skipa Íslandi í hóp fremstu áfangastaða heims á sviði heilsu og vellíðunar. Við höfum margt uppá að bjóða; jarðhitann, stórbrotna náttúru, hreint loft og vatn ásamt öryggi og góð lífskjör,“ sagði Sigríður Margrét.





