Ný tísku- og fylgihlutaverslun opnuð á Keflavíkurflugvelli
Ný tísku- og fylgihlutaverslun, Beyond Shades, hefur verið opnuð á Keflavíkurflugvelli (KEF). Verslunin býður upp á sólgleraugu, skartgripi og aðra fylgihluti, með áherslu á fjölbreytt úrval íslenskra og alþjóðlegra vörumerkja.
Rekstur Beyond Shades er í höndum Ísland Duty Free, sem rekur fríhafnarverslanir á Keflavíkurflugvelli. Verslunin verður rekin tímabundið til eins árs og er ætlað að styrkja og auka fjölbreytni í verslunarframboði flugstöðvarinnar. Beyond Shades er staðsett á því svæði flugstöðvarinnar þar sem Eyesland var áður til húsa.
Íslensk hönnun og alþjóðleg vörumerki
Í Beyond Shades verður lögð áhersla á breitt úrval fylgihluta. Meðal annars verður íslenskum skartgripum frá Sign og Sif Jakobs gert hátt undir höfði ásamt úrvali þekktra alþjóðlegra vörumerkja í sólgleraugum eins og Prada, Maui Jim, Miu Miu og öðrum fylgihlutum. Þannig er markmiðið að skapa verslun sem höfðar til breiðs hóps farþega og verður kærkomin viðbót við núverandi verslunarframboð KEF.
„Við leggjum mikla áherslu á gott samstarf við Keflavíkurflugvöll og þegar þetta tækifæri kom upp sáum við strax spennandi möguleika á að skapa nýja verslun á svæðinu. Við viljum meðal annars gera íslenskum skartgripum hærra undir höfði og gefa þeim aukið rými, samhliða sterku úrvali alþjóðlegra vörumerkja í sólgleraugum og öðrum fylgihlutum. Við hlökkum til að þróa Beyond Shades áfram og taka á móti farþegum í nýju versluninni,“ segir Liam Grundy, framkvæmdastjóri Ísland Duty Free.
Fjölbreyttara verslunarframboð fyrir farþega
Opnun Beyond Shades er liður í að nýta verslunarrými flugstöðvarinnar á markvissan hátt og um leið skapa svigrúm til að meta nýtt verslunarframboð. Tímabundinn rekstur gefur jafnframt tækifæri til að fylgjast með viðbrögðum farþega og reynslu af nýju framboði.
„Farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll eru fjölbreyttur hópur og við viljum að verslunar- og þjónustuframboðið endurspegli það. Beyond Shades bætir nýjum valkosti við flugstöðina, með blöndu af íslenskri hönnun og þekktum alþjóðlegum vörumerkjum, og gefur okkur um leið tækifæri til að prófa nýtt framboð. Slík tímabundin verkefni geta gefið okkur verðmæta reynslu af því hvað höfðar til farþega og hjálpar okkur í að þróa verslunarframboðið á Keflavíkurflugvelli,“ segir Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskipta á KEF.
Vinna við áframhaldandi þróun verslunar- og veitingaframboðs á Keflavíkurflugvelli stendur yfir. Beyond Shades verður rekin tímabundið til eins árs á meðan unnið er að næstu skrefum varðandi framtíðarskipulag verslunar- og veitingasvæða flugstöðvarinnar.





