Viðskipti

Fermetraverð í Reykjanesbæ nánast það sama og á Selfossi
Sunnudagur 8. nóvember 2026 kl. 05:23

Fermetraverð í Reykjanesbæ nánast það sama og á Selfossi

Fermetraverð í Reykjanesbæ hefur hækkað um tæp 65% frá árunum 2021–2022, samanborið við rúm 40% hækkun á höfuðborgarsvæðinu.

Miðgildi kaupverðs á fermetra í Reykjanesbæ var um 630 þúsund krónur á tólf mánaða tímabili til loka september 2026, nánast það sama og á Selfossi þar sem fermetraverðið var 632 þúsund krónur. Fermetraverð í Reykjanesbæ hefur hækkað um tæp 65% frá árunum 2021–2022, samanborið við rúm 40% hækkun á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í útreikningum Karp (karp.is) úr kaupskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).

Bornir eru saman kaupsamningar sem þinglýst var frá apríl 2021 til mars 2022 og frá október 2025 til september 2026. Á fyrra tímabilinu var miðgildi fermetraverðs í Reykjanesbæ 382 þúsund krónur en er nú 630 þúsund krónur. Hækkunin nemur 64,9%.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Á sama tíma hefur fermetraverð á Selfossi hækkað úr 431 þúsund krónum í 632 þúsund, eða um 46,7%. Reykjanesbær var því rúmlega 11% undir Selfossi á fyrra tímabilinu en munurinn er nú nánast horfinn.

Þótt fermetraverðið sé orðið svipað er ekki þar með sagt að heildarkaupverð íbúða sé það sama. Íbúðir sem seljast á Selfossi eru að jafnaði stærri og heildarkaupverðið því nokkrum milljónum króna hærra þar.

Hlutfallslegt verðbil við höfuðborgarsvæðið hefur minnkað

Á fyrra tímabilinu var fermetraverð í Reykjanesbæ um 66% af verðinu á höfuðborgarsvæðinu en er nú 77,5%. Hlutfallslega hefur bilið því minnkað um þriðjung.

Munurinn er þó enn verulegur. Miðgildi fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu er 813 þúsund krónur, eða 183 þúsund krónum hærra en í Reykjanesbæ. Fermetraverðið í Reykjanesbæ er því enn 22,5% lægra.

Í krónum talið hefur munurinn aðeins minnkað um 15 þúsund krónur á fermetra, úr 198 þúsund krónum á fyrra tímabilinu í 183 þúsund krónur nú.

Svipuð þróun kemur fram þegar nýbyggingar eru undanskildar útreikningunum.

Njarðvík með hæsta fermetraverðið á Suðurnesjum

Þegar einstakir byggðarkjarnar á Suðurnesjum eru skoðaðir kemur í ljós að miðgildi fermetraverðs er hæst í Njarðvík, eða 677 þúsund krónur. Þar hefur verðið hækkað um 58,5% frá fyrra tímabilinu þegar það var 427 þúsund krónur.

Í Keflavík hefur fermetraverðið hækkað úr 353 þúsund krónum í 588 þúsund, eða um 66,6%. Á Ásbrú hefur það farið úr 319 þúsund krónum í 511 þúsund, sem er 60,4% hækkun.

Í Garði hefur fermetraverðið hækkað um 71,3%, úr 326 þúsund krónum í 559 þúsund krónur. Í Vogum hefur hækkunin verið 39,6% og er fermetraverðið þar nú 584 þúsund krónur.

Nýbyggingar hafa mikil áhrif í Sandgerði

Mesta hlutfallslega hækkunin mælist í Sandgerði, þar sem miðgildi fermetraverðs hefur farið úr 281 þúsund krónum í 601 þúsund krónur, eða um 113,6%.

Þessa hækkun þarf þó að skoða í ljósi þess að nýbyggingar skýra stóran hluta hennar. Þegar eignum sem byggðar voru á söluárinu eða árinu á undan er sleppt fer fermetraverðið úr 280 þúsund krónum í 468 þúsund krónur. Það jafngildir um 67% hækkun, sem er svipað og í Keflavík og Garði.

Einnig ber að hafa í huga að tiltölulega fáir kaupsamningar liggja að baki niðurstöðunum í Sandgerði. Á síðara tímabilinu voru þeir aðeins 35.

Sölur í Sandgerði, Garði og Vogum eru almennt mun færri en í stærri byggðarkjörnum og því getur miðgildi fermetraverðs sveiflast töluvert milli ára, meðal annars eftir því hvers konar eignir seljast.

Útreikningar byggja á þinglýstum kaupsamningum

Útreikningarnir ná til allra íbúða, bæði í fjölbýli og sérbýli, í kaupsamningum sem HMS hefur merkt nothæfa. Miðað er við þinglýsingardag samninganna.

Í Reykjanesbæ voru 940 kaupsamningar á fyrra tímabilinu og 508 á því síðara. Á höfuðborgarsvæðinu voru samningarnir 7.827 á fyrra tímabilinu og 5.745 á því síðara.

Um er að ræða útreikninga Karp á miðgildi fermetraverðs í seldum eignum, en ekki formlega húsnæðisverðsvísitölu. Samsetning seldra eigna, meðal annars stærð þeirra, tegund og hlutfall nýbygginga, getur haft áhrif á niðurstöðurnar.

Hækkanirnar eru reiknaðar í krónum á verðlagi hvers tímabils og hafa ekki verið leiðréttar fyrir verðbólgu.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100