Fyrsta flug Air China til Keflavíkur - mikilvæg Asíutenging
Kínverska flugfélagið Air China hóf áætlunarflug milli Peking og Íslands með viðkomu í Kaupmannahöfn mánudaginn 26. október 2026. Þar með bættist mikilvæg ný Asíutenging við leiðakerfi Keflavíkurflugvallar og markar það tímamót fyrir KEF, íslenska ferðaþjónustu, atvinnulíf og alþjóðleg samskipti.
Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Keflavíkurflugvelli, segir komu Air China marka mikilvæg tímamót fyrir þróun leiðakerfis flugvallarins.
„Þessi nýja leið færir Keflavíkurflugvelli mikilvæga tengingu við Asíu og styrkir enn frekar alþjóðlega tengingu Íslands við umheiminn. Þessi viðbót í leiðakerfið okkar skapar verðmæt tækifæri bæði fyrir íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustu. Við höfum unnið markvisst að því að auka fjölbreytni í leiðakerfi KEF og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þessa tengingu verða að veruleika.“
Komu fyrsta flugsins var fagnað á Keflavíkurflugvelli. Farþegar og áhöfn Air China fengu hlýjar móttökur við lendingu í KEF.







