Viðskipti

Byggja stærstu abalónueldisstöð Evrópu á Reykjanesi - nýta borholusjó sem er hitaður með jarðvarma
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 22. október 2026 kl. 09:49

Byggja stærstu abalónueldisstöð Evrópu á Reykjanesi - nýta borholusjó sem er hitaður með jarðvarma

Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu

Aurora Abalone hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu. Fjármagnið verður nýtt til að styðja við stærsta uppbyggingaráfanga í sögu félagsins, sem felst í að byggja upp 100 tonna árlega framleiðslu á abalónum. Abalónur teljast til sælkeraafurða sem eru eftirsóttar hjá fremstu matreiðslumönnum heims.

Aurora Abalone byggir á áratugalöngu rannsóknar- og þróunarstarfi sem nú er stefnt að skili hágæða afurðum á kröfuharða markaði erlendis. Félagið rekur hlýsjávarlandeldi í Grindavík og í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, þar sem eigið eldiskerfi félagsins, SustainCycle™, nýtir sérstöðu Íslands: kaldan, hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með jarðvarma.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Richard K. Dulaney, forstjóri, segir: „Aurora Abalone hefur skref fyrir skref síðustu áratugi ræktað og þróað einstaka afurð. Við erum með öflugt og reynslumikið alþjóðlegt teymi og teljum góða vaxtarmöguleika fram undan. Nú einbeitum við okkur að því að halda fast utan um fjárfestinguna, samhliða því sem við byggjum upp traust viðskiptasambönd og mætum eftirspurn með aukinni og sjálfbærri framleiðslu.“

Sigurður Pétursson, stjórnarformaður, segir: „Við erum afar þakklát fyrir það traust sem reynslumiklir fjárfestar sýna félaginu, sem gerir okkur kleift að ráðast í stærsta uppbyggingaráfanga þess. Stjórn félagsins réð Richard í starf forstjóra í september. Hann hefur gegnt lykilhlutverki sem fjármálastjóri félagsins og komið náið að undirbúningi þeirrar uppbyggingar sem fram undan er. Hann hefur mikla reynslu af stjórnun fyrirtækja og er með doktorsgráðu í erfðafræði, sem ásamt ástríðu hans fyrir verkefninu mun nýtast félaginu vel.“

 Um Aurora Abalone

Aurora Abalone er eina abalónueldi Íslands. Félagið ræktar Ezo-abalónur (Haliotis discus hannai), sem eru í hávegum hafðar í japanskri matargerð, og blendinga af Ezo- og rauðri abalónu, í landeldi í Grindavík og á Reykjanesi. Eldisstofn félagsins hefur verið byggður upp í áratugi úr japönskum stofnum frá Hokkaido, Iwate og Miyagi. Eldið nýtir hraunsíaðan borholusjó sem hitaður er með affallssjó frá jarðvarmavirkjun, og sjávarsalat sem ræktað er á staðnum er hluti af fóðri dýranna. Hjá félaginu starfa 11 manns. Félagið undirbýr nú nýja eldisstöð í Auðlindagarði HS Orku sem verður stærsta abalónueldisstöð Evrópu, og byggir upp markaði fyrir afurðir sínar í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn