Hviða
Hviða

Fréttir

Endurbættur Hlévangur opnaður sem skammtíma hjúkrunarheimili
Frá opnun Hlévangs, Alma D. Möller, Vilhjálmur Árnason, Inga Sæland og Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir. VF/pket.
Þriðjudagur 20. október 2026 kl. 18:10

Endurbættur Hlévangur opnaður sem skammtíma hjúkrunarheimili

Hlévangur við Faxabraut í Keflavík hefur verið opnaður að nýju en hjúkrunarheimilinu var lokað um síðustu áramót en opnar nú sem skammtíma hjúkrunarheimili og eru þegar þrír einstaklingar fluttir inn en þeim mun fjölga á næstunni.

Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, fagnaði með heilbrigðisráðherra og félags- og barnamálaráðherra og fleiri aðilum en framkvæmdir hafa staðið yfir í húsnæðinu síðustu mánuði.

Hlévangi er ætlað að létta af álagi á Landspítala en einnig á Suðurnesjum en fólk hefur beðið eftir plássi á 2. hæð sjúkrahússins í Keflavík. Kostnaður við breytingar og kaup á nýjum húsgögnum og rúmum er á annað hundrað milljónir króna.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Húsnæðið er í eigu Reykjanesbæjar en samningur var gerður við ríkið um leigu á því til tveggja ára með mögulegri framlengingu. Ráðuneytið stóð straum af kostnaði við endurbætur og heilbrigðisráðuneytið fjármagnar síðan reksturinn sem er í höndum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Ráðherrarnir Alma D. Möller og Inga Sæland fögnuðu því að þessum áfanga hafi verið náð á skömmum tíma og að vel hafi verið að verki staðið hjá öllum sem komu að þessu verkefni. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók undir með þeim og þakkaði þeim sem komu að þessari ákvörðun og framvindu verkefnisins.

Séð inn í eitt herbergjanna á Hlévangi.

Prestarnir Fitz Jörgenson og Erla Guðmundsdóttir blessuðu endurbættan Hlévang.

Endurbætur við Hlévang kostuðu rúmlega eitthundrað milljónir króna.

Bílakjarninn
Bílakjarninn