Engin húrrahróp hjá sjómönnum yfir október
Þá er október kominn á enda og það er ekki hægt að segja að sjómenn hrópi húrra fyrir nýliðnum mánuði, því hann var býsna erfiður, sérstaklega gagnvart veðurfari.
Það gengu ansi miklir stormar yfir landið og það skipti ekki máli hvort bátarnir væru gerðir út frá Suðurnesjum, fyrir austan eða norðan. Allir fengu sinn skerf af veðurfarinu.
Það voru helst stóru línubátarnir og togararnir sem gátu verið að veiðum en þeir lönduðu víða um landið. Sóley Sigurjóns GK var með 409 tonn í fjórum löndunum og var öllu landað í Neskaupstað. Hulda Björnsdóttir GK kom líka til Neskaupstaðar en landaði að öðru leyti í Grindavík, var með 517 tonn í fjórum löndunum og mest 160 tonn. Sömuleiðis var Pálína Þórunn GK í Neskaupstað og reyndar líka í Hafnarfirði og var með 231 tonn í fimm löndunum og var þessu reyndar öllu landað í Neskaupstað nema snemma í október þegar Pálína kom til Hafnarfjarðar.
Allir frystitogararnir lönduðu í október og gekk vel hjá þeim. Hrafn Sveinbjarnarsson GK kom með 655 tonn í land og Tómas Þorvaldsson GK kom með 827 tonn í land, báðir til Grindavíkur. Baldvin Njálsson GK kom með 783 tonn til Hafnarfjarðar þar sem uppistaðan var ýsa og þorskur, um 311 tonn af ýsu.
Hjá línubátunum þá fór frekar illa fyrir Gulltoppi EA sem rær á balalínu frá Skagaströnd, en Stakkavík ehf. á bátinn. Hann landaði í byrjun október 23 tonnum í fjórum róðrum, en síðan kom upp vélarbilun í bátnum og hún var svo stór að hífa þurfti vélina úr bátnum, og er því Gulltoppur EA úr leik eitthvað út þetta ár meðan unnið er að viðgerð á vélinni.
Margrét GK var í Sandgerði og með 68 tonn í 12 róðrum og mest 8,4 tonn, þetta er ágætis afli, en veðurfarið gerði það að verkum að báturinn komst ekki í fleiri róðra.
Af hinum línubátunum má nefna að Auður Vésteins SU var með 188 tonn í 18 róðrum og mest 19 tonn. Vésteinn GK 101 tonn í 9 og mest 19,1 tonn. Gísli Súrsson GK 123 tonn í 11 og mest 17,8 tonn. Allt eru þetta Einhamarsbátar og lönduðu þeir að mestu í Neskaupstað og einnig á Stöðvarfirði. Mestu öllum fiskinum frá bátunum var ekið til Grindavíkur til vinnslu. Fjölnir GK var líka í Neskaupstað og var með 158 tonn í 15 róðrum og mest 21 tonn.
Aðeins fór að fjölga hjá netabátunum því að tveir bátar á vegum Hólmgríms fóru á þorsknetaveiðar í Faxaflóa, Emma Rós KE sem var með 14,6 tonn í 6 róðrum og Elley GK sem var með 6,4 tonn í 7, Grímsi GK er enn að eltast við ufsann en það gekk tregt hjá honum, var með 81 tonn í 9 og mest 20 tonn. Hann fór alla leið austur að Hornafirði, svo hann þvældist ansi víða.
Reyndar var ufsinn mjög erfiður í október og færabátararnir sem reyndu fyrir sér við hann náðu nokkur hundruð kílóum af ufsa eftir daginn, en það hjálpaði til þó að veiðin væri treg að verð á fiskmörkuðum fyrir ufsa voru mjög há, svo að 500 kg afli af ufsa gaf nokkuð vel af sér. En nóvember er kominn í gang og vonandi lagast veiðin hjá færabátunum.





