Ný og glæsileg Nettó verslun opnar á Aðaltorgi
1.500 fermetra verslun, opin allan sólarhringinn og fyrsta snyrtivörudeild Nettó
„Þetta er glæsileg verslun með mikið vöruúrval, mjög góð tilboð og opið allan sólarhringinn. Við starfsfólkið hlökkum mikið til og vonumst til að sjá sem flesta þegar við opnum. Við munum verða með mjög vegleg opnunartilboð og fjör,“ segir Katrín Hilmarsdóttir, verslunarstjóri nýrrar Nettó verslunar við Aðaltorg í Reykjanesbæ sem opnar laugardaginn 7. nóvember.
Verslunin, sem er 1.500 fermetrar verður opin allan sólarhringinn og kemur í stað Nettó á Iðavöllum sem lokaði í vikunni. Að sögn Katrínar verða á fjórða tug starfsmanna í versluninni. Katrín á sjálf fjórtán ára feril að baki í verslunargeiranum en hún bjó í Grindavík fyrir rýmingu en flutti þaðan til Sandgerðis þar sem hún býr núna.
„Nettó á langa sögu á Reykjanesi og því erum við einstaklega stolt af því að opna nýja og glæsilega verslun á Aðaltorgi og bjóða íbúum Reykjanesbæjar upp á enn betri þjónustu, allan sólarhringinn. Í þessari verslun opnum við einnig fyrstu snyrtivörudeild Nettó. Við lögðum mikinn metnað í að gera hana sem glæsilegasta og bjóða upp á spennandi alþjóðleg vörumerki. Snyrtivörurnar verða á verði sem mun vera áskorun fyrir samkeppnina á þessum markaði,“ segir Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó.
Fyrsta Nettó verslunin með snyrtivörudeild
Í nýju versluninni á Aðaltorgi verður 130 fermetrar snyrtivörudeild sem er sú fyrsta sem Nettó opnar, en á næstu mánuðum munu fleiri sambærilegar snyrtivörudeildir opna í verslunum Nettó um land allt.
Snyrtivörudeildin mun bjóða upp á fjölda nýrra vörumerkja, sem sum hafa ekki verið fáanleg áður á Íslandi. Sérstök áhersla verður lögð á K-Beauty og alþjóðleg snyrtivörumerki á borð við TIRTIR, Anua, Medicube, Biodance og Beauty of Joseon. Auk allt frá vinsælli förðun til hárvara sem fagaðilar nota, ilmefna og snyrtitækja. Markmiðið er að skapa verslunarupplifun þar sem viðskiptavinir geta uppgötvað nýjar vörur, prófað sig áfram og fundið bæði hagstæðar og vandaðar snyrtivörur á einum stað, segir í frétt frá Nettó.
Opnunarhátíð á laugardag
Í tilefni opnunarinnar verður opnunarhátíð á laugardag þar sem gestum og gangandi gefst tækifæri til að smakka alls kyns góðgæti meðal annars frá Kjötborðinu, Freyju og Helvítis sultunum. Glæsileg opnunartilboð verða alla helgina en einnig fá viðskiptavinir kost á að snúa lukkuhjóli og eiga möguleika á skemmtilegum verðlaunum. Að auki fá fyrstu 100 viðskiptavinir sem versla í nýju snyrtivörudeildinni veglegan glaðning. Kandíflos og blöðrur verða í boði fyrir börnin milli 12 –16.

Það var allt á fullu þegar Víkurfréttir litu við í nýju versluninni.










