FIT
FIT

Pistlar

Dragnótaveiði í fullum gangi og góð ufsaveiði
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
laugardaginn 31. október 2026 kl. 11:50

Dragnótaveiði í fullum gangi og góð ufsaveiði

Það er ansi fallegt að sitja núna við tölvuna heima í Sandgerði þar sem ég bý og skrifa og horfa útum gluggann á fallega sólsetrið því að þessi vika frá því síðasti pistill kom hefur heldur betur verið góð. Í það minnsta gagnvart veðrinu.

Svo gott hefur veðrið verið að þó nokkrir færabátar að mestu frá Sandgerð hafa komist á sjóinn að eltast við ufsann í Röstinni og reyndar á svæðinu í kringum Eldey og þegar að þessi pistill er skrifaður þá fóru tveir færabátar alla leið út á Hrygg sem er í um 45 mílna fjarðlægð frá Sandgerði.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þessir bátar sem hafa verið á færum núna eru Dímon GK, Guðrún GK, Hawkerinn GK, Una KE, og núna í dag er Skáley SH líka, sem og Agla ÍS en hún rær frá Grindavík.

Mjög hátt verð er á ufsanum núna á mörkuðum í kringum 450 til 500 krónur. Reyndar þá hefur aflinn verið frekar tregur hjá færabátunum en hátt verð á markaði á ufsa bætir verulega fyrir það að aflinn sé ekki mikill.

Á síðustu þremur dögum þá hefur Dímon GK landað 930 kílóum í 3 róðrum. Guðrún GK 1,1 tonn í 2 róðrum og Hawkerinn GK 2,8 tonn í 3 róðrum. Hann fór einn út rétt eftir bræluna og gekk ansi vel, var með 1,4 tonn af ufsa og fékk ansi hátt verð fyrir aflann á fiskamarkaði, vel yfir 500 krónur kílóið.

Annars er dragnótaveiðin í Faxaflóanum í fullum gangi og veiðar ganga ansi vel. Aðalbjörg RE sem hefur núna seinni partinn í október verið á veiðum útaf Garðskaga er kominn með 173 tonn í 12 róðrum og mest 28 tonn í einni löndun og er aflahæsti dragnótabátur landsins þegar þetta er skrifað. Báturinn hefur landað í Reykjavík og í Njarðvík. Annar bátur hefur verið að landa í Njarðvík og er það Stapafell SH sem er kominn með 135 tonn í 11 róðrum og mest 21,4 tonn.

Í Sandgerði er Siggi Bjarna GK sem er með 102 tonn í 11 róðrum og mest 21 tonn og Benni Sæm GK með 106 tonní 12 róðrum og mest 21 tonn, Sigurfari GK er með 69 tonn í 9 túrum og Maggý VE 52 tonn í átta.

Tveir minni línubátar eru núna á veiðum frá Suðurnesjunum, í Grindavík er Dúddi Gísla GK sem er kominn með 32 tonn í 7 róðrum og mest 5,4 tonn, og í Sandgerði er Margrét GK sem er kominn með 54 tonn í 11 róðrum og mest 7,6 tonn.

Annars eru ennþá flest allir minni línubátarnir úti á landi og reyndar hefur veður haft smávegis áhrif á sjósókn bátanna því bátarnir hafa náð þetta mest 15 róðrum í okt.

Guðbjörg GK er fyrir norðan og kominn með 91 tonní 13 róðrum og mest 17,8 tonn. Geirfugl GK með 47 tonn í 11 og mest 7,6 tonn. Hópsnes GK 67 tonn í 12 og mest 12,6 tonn. Óli á Stað er GK 115 tonn í 14 og mest 14 tonn. Allir bátarnir á veiðum fyrir norðan og allt Stakkavíkurbátar.

Sigvaldi skipstjóri á Grímsa GK er að eltast við ufsann og hann er kominn ansi langt, en hann var að landa á Hornafirði og kom þangað með 14,4 tonn í einni löndun. Aftur á móti hérna fyrir sunnan þá er þorskveiðin í net svo til að byrja því að tveir bátar, á vegum Hólmgríms eru byrjaðir og eru það Elley GK sem er með 3.3 tonn í 5 róðrum og Emma Rós KE sem er með 4 tonní 3 róðrum.

Svo til enginn bátur hefur verið á netaveiðum í Faxaflóanum síðan um miðjan september, en ÍsakAK frá Akranesi var á netum allan september og gekk mjög vel hjá honum, og var með 54 tonn í 14 róðrum og mest 8,9 tonn.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100