Hvað er eiginlega í gangi í Reykjanesbæ?
Þá er október kominn í gang, og jú, það er smá fjölgun á línubátunum hérna á Suðurnesjunum, því að Dúddi Gísla GK kom til Grindavíkur eftir að hafa verið hluta af september á Skagaströnd. Báturinn hefur engum afla landað, en var reyndar á sjó sama dag og þessi pistill var skrifaður, en aflatölur voru ekki komnar.
Margrét GK er í Sandgerði og hefur leitað víða fyrir sér, en hefur verið að fara suður frá Sandgerði og gengið nokkuð vel, var með um 19 tonn í fjórum róðrum í september og núna í október hefur báturinn farið tvisvar út og landað um 10 tonnum.
Tíðarfarið hefur verið frekar erfitt fyrir færabátana en þó náðu Guðrún GK og Dímon GK að fara út núna eftir helgi og í Röstina, var Dímon GK með rúmlega 300 kíló og Guðrún GK með rúmlega 400 kíló, mest af ufsa.
Þá er aflafréttum lokið, en þessi pistill verður aðeins með öðruvísi sniði, og kannski verður þetta leiðinlegasti pistill sem ég hef skrifað í þau mörgu ár sem ég hef skrifað pistla.
Annars þegar þessi pistill er skrifaður þá má segja að leiðinlegar fréttir séu að gerast á Suðurnesjum og sérstaklega í mínum heimabæ, Sandgerði. Kosningar nýbúnar og varla komnir 5 mánuðir í samstarf þegar meirihlutinn sem var myndaður af Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki sprakk. Ég held að það sé orðið svo til langfullreynt að reyna að halda þessu áfram, komin tæp 8 ár síðan Garður og Sandgerði voru sameinuð og stríðið á milli bæjarhlutanna hefur bara versnað.
Þetta er leiðindamál, en það er annað ennþá leiðinlegra mál og jafnframt mjög furðulegt mál sem var að gerast í Keflavík, Njarðvík.
Á árum áður var mikið um fiskvinnslur í Keflavík og Njarðvík, t.d. Brynjólfur, Ísver, Hraðfrystihús Keflavíkur og Sjöstjarnan, svo dæmi séu tekin. Öll þessi fyrirtæki eru hætt og fiskvinnslur í Keflavík og Njarðvík eru orðnar fáar. Í raun eru aðeins í dag fimm vinnslur, það er Saltver og Hólmgrímur sem báðar eru með saltfiskvinnslur, Saltver við Njarðvíkurhöfn og Hólmgrímur á Vatnsnesi í Keflavík. Á Vatnsnesi, ekki langt frá Hótel Keflavík, er Eric The Red, en þeir eru líka í Sandgerði.
Mitt á milli þessara tveggja staða er svo Bakkastígur og þar eru tvær fiskverkanir, Selnes Seafood, og síðan Premium og Iceland.
Premium of Iceland er í húsnæði sem var smíðað árið 1986 og hefur hýst margar verkanir, til að mynda verkun Hilmars og Odds, sem gerðu út Vatnsnes KE og Stafnes KE, síðan var Bakkvör þarna, Ísver og líka rækjuvinnsla Saltvers.
Sem sé saga hússins er löng sem fiskverkun og hefur í gegnum tíðina rekstur fyrirtækja sem þarna hafa verið gengið vel, en núna er komið svo til allt annað viðhorf, því að fyrirtækinu hefur verið gert að loka vegna þess að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur ítrekað synjað fyrirtækinu um starfsleyfi á þeim grundvelli að starfsemin samræmist ekki aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
Þetta er í raun alveg ótrúlegt, og ég má víst ekki bölva í þessum pistlum, en hvað í $%&&$# er eiginlega í gangi í Reykjanesbæ, þegar heilu fyrirtæki er gert að loka og 20 til 30 manns missa vinnuna.
Í raun gæti þetta sama gerst á Vatnsnesi þar sem Hólmgrímur er með sína vinnslu, en búið er að teikna á Vatnsnesi þessar fínu blokkir með fínu útsýni, en það þýðir að Hólmgrímur þarf þá líka að loka sínu, en reyndar er herdeildin í Reykjanesbæ ekki komin svo langt í ferlinu að ýta Hólmgrími út, þó svo að hún hafi ýtt Premium of Iceland út.
Mér skilst að Gylfi eigandi Premium of Iceland ætli ekki að láta þetta stoppa sig og við Gylfa vil ég bara segja að þú ert alltaf velkominn til Sandgerðis. Það eru ein eða tvö hús rétt við Sandgerðishöfn og við Fiskmarkaðinn sem þú ættir að kíkja á. Það er engin herdeild í Sandgerði heldur er vel tekið á móti fiskvinnslum þar í bænum.








