Visitor
Visitor

Pistlar

Rólegt í útgerðinni á Suðurnesjum
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
sunnudaginn 20. september 2026 kl. 18:35

Rólegt í útgerðinni á Suðurnesjum

September hálfnaður og frekar rólegt í útgerð frá Suðurnesjunum.

Veiðar dragnótabátanna í Faxaflóa ganga nokkuð vel, og er Benni Sæm GK kominn með 105 tonna afla í sjö róðrum og mest 21 tonn í einni löndun, Siggi Bjarna GK er með 90 tonn í sjö róðrum og mest 22 tonn, báðir að landa í Sandgerði.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þessir tveir bátar eru hæstu bátarnir í Faxaflóa, næstir á eftir þeim er Aðalbjörg RE með 84 tonn í 7 og mest 15,7 tonn, landað í Reykjavík, Hafdís SK er með 83 tonn landað í Hafnarfirði og Stapafell SH með 66 tonn í 6 og landað í Reykjavík.

Maggý VE og Sigurfari GK eru líka á dragnót en þeir eru reyndar ekki í Faxaflóa enda eru bátarnir of langir, Maggý VE hefur landað 24 tonnum í fjórum róðrum og Sigurfari GK 70 tonnum í fimm róðrum.

Nokkrir færabátar hafa verið að skjótast út og Johnny á Hawkernum GK hefur farið í þrjá róðra og reyndar þegar þessi pistill er skrifaður er hann í róðri númer fjögur í september. Hann hefur landað 2,1 tonni í þremur róðrum. Bjössi á Dímon GK er með 1,1 tonn í tveimur róðrum. Sævar á Guðrúnu GK er með 1,7 tonn í tveimur róðrum og er hann á sjó þennan dag sem þessi pistill er skrifaður. Allir í Sandgerði

Ólafur GK í Grindavík er með 520 kíló í 2 róðrum og er hann líka á sjó þegar þessi pistill er skrifaður.

Núna er kominn tími á að stóru línubátarnir tveir frá Vísi ehf. í Grindavík fari að landa austur á Djúpavogi. Báðir bátarnir hafa landað þar. Sighvatur GK kom fyrst til Grindavíkur með 94 tonna afla og síðan til Djúpavogs með 98 tonna afla. Töluverður munur var á aflanum hjá bátunum. Í Grindavík var uppistaðan langa, 42 tonn en á Djúpavogi var uppistaðan í aflanum þorskur eða 88 tonn.

Páll Jónsson GK byrjaði að landa á Djúpavogi og kom með 123 tonn þangað og síðan 108 tonn til Grindavíkur. En báturinn var við veiðar fyrir austan í báðum túrunum.

Reyndar er veiði hjá línubátunum sem eru fyrir austan nokkuð góð, Margrét GK hefur landað 73 tonnum í 7 róðrum og mest 18,2 tonnum. Fjölnir GK með 108 tonn í 11 róðrum og mest 19,2 tonn. Gísli Súrsson GK með 65 tonn í 7 og mest 17,9 tonn. Auður Vésteins SU 91 tonn í 10 og mest 18,2 tonn.

Samhliða því að bátarnir landi þarna fyrir austan þá fylgja því ansi miklir fiskflutningar, því að til dæmis aflanum af Einhamarsbátunum sem eru Vésteinn GK, Auður Vésteins SU og Gísli Súrsson GK er öllum ekið til Grindavíkur. Einhamar ehf. sér sjálfur um þann akstur enda eiga þeir bíla í það verkefni.

Aflinn hjá Margréti GK er ekinn til vinnslu alla leið til Sandgerðis og Garðs, og Nesfiskur lætur Eimskip sjá um að aka fiskinum suður.

Fyrir norðan er Stakkavík komin með alla bátana sína á Skagaströnd og Siglufjörð, nema Hemma á Stað GK en hann er kominn í slipp í Njarðvík. Geirfugl GK byrjaði línuveiðar í Sandgerði en fór norður til Skagastrandar, var með 3,3 tonn í Sandgerði í tveimur róðrum og kom síðan til Skagastrandar og landaði þar 2,5 tonnum í einni löndun.

Óli á Stað GK er á Siglufirði og gengur ansi vel þar, kominn með 100 tonn í tíu róðrum og mest 20 tonn í einni löndun.

Á Skagaströnd er Guðbjörg GK með 54 tonn í 9 róðrum og mest 14,5 tonn. Gulltoppur EA 24,6 tonn í 6 og mest 6,2 tonn, en hann rær með balalínu sem er beitt í Sandgerði. Hópsnes GK 48 tonn í 11 róðrum. Allir þessir bátar eru frá Stakkavík og sér Stakkavík sjálft um að aka fiskinum suður en þeir eiga tvo trukka í það verkefni,

Á Skagaströnd er líka Dúddi Gísla GK sem hefur landað 59 tonnum í 8 róðrum og mest 11,4 tonn

Bílakjarninn
Bílakjarninn