Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Nýtt baðlón og lifandi miðbær á Vatnsnesi
Steinþór Jónsson mætti með skóflu á svið, þá sömu og fyrir aldarfjórðungi þegar pressa var sett á að Reykjanesbraut yrði tvöfölduð. VF/hilmarbragi
Sunnudagur 20. september 2026 kl. 05:52

Nýtt baðlón og lifandi miðbær á Vatnsnesi

Metnaðarfull framtíðarsýn um Kef Center

Steinþór Jónsson, eigandi Hótels Keflavíkur, kynnti stórhuga uppbyggingaráform undir heitinu Kef Center á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Hugmyndin, sem áður hefur verið greint frá í Víkurfréttum, snýst um að búa til lifandi miðbæjar- og þjónustukjarna á Vatnsnesinu sem sameinar afþreyingu, verslun, veitingastaði og mannlíf á einum sérstökum stað. Meginuppistaða verkefnisins er að nýta eina fallegustu strandlengju landsins og tengja saman staðbundna þjónustu og ferðaþjónustu á nýstárlegan hátt.

Baðlón og miklir möguleikar á Vatnsnesi

Ráðgert er að reisa glæsilegt baðlón norðan megin á Vatnsnesi sem mun nýta náttúrulega kletta, strandlengju og útsýni yfir sjóinn, en lóninu er ætlað að vera mikið aðdráttarafl fyrir bæði heimamenn og ferðamenn. Svæðið stendur mjög þétt við höfnina og miðbæinn, sem skapar einstakar aðstæður á landsvísu til að tvinna saman komur skemmtiferðaskipa, verslun og afþreyingu á einum bletti.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Uppbyggingin er þegar hafin innan frá þar sem KEF-fjölskyldan hefur tryggt sér aðstöðulóðir á svæðinu, meðal annars Olís-lóðina og við Framnesveg, stækkað Hótel Keflavík, opnað Kef Spa & Fitness heilsuræktina og tekið Vatnsneshúsið í gegn. Steinþór benti á að undirbúningur hefði staðið yfir í þrjú ár og undirstrikaði mikilvægi þess að hefja framkvæmdir í áföngum og vinna með öllum lóðarhöfum á svæðinu til að gera heildarsýnina að veruleika.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn