Fjórir milljarðar á ári í veituinnviði
Tvöfalda fjárfestingar á Suðurnesjum
HS Veitur hyggjast tvöfalda árlegar fjárfestingar sínar á komandi árum til að mæta hröðum íbúavexti og auknum umsvifum atvinnulífs á svæðinu. Páll Erland, forstjóri HS Veitna, greindi frá því á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar að áætlaðar fjárfestingar fari úr tveimur milljörðum króna á ári í um fjóra milljarða á ári næstu fimm árin. Rúmlega helmingur þessa fjármagns mun renna beint til framkvæmda á Suðurnesjum, en hlutfallið mun fara vaxandi þegar nær dregur næstu árum.
Mikið raforkuöryggi og aukin afhending í vændum
Sérstaklega er beðið eftir að framkvæmdum við Suðurnesjalínu 2 ljúki á næstunni, en hún mun styrkja raforkuöryggi og afkastagetu svæðisins til muna og styðja við áframhaldandi uppbyggingu. Samkvæmt greiningum fyrirtækisins er gert ráð fyrir að rafmagnsþörf á þjónustusvæðinu geti aukist um 100% til ársins 2050 vegna fólksfjölgunar og orkuskipta í samgöngum. Þá er áætlað að þörf fyrir bæði heitt og kalt vatn á Suðurnesjum muni allt að því tvöfaldast á næstu 25 árum.
Sérstök áhersla er sömuleiðis lögð á að efla raforkuafhendingu fyrir flugvallarsvæðið í heild sinni og styrkja innviði í Helguvík til að mæta aukinni eftirspurn atvinnulífsins. Páll benti á að HS Veitur búi að hagkvæmum rekstri sem skili sér í lágu verðlagi til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, en félagið rekur meðal annars ódýrustu rafveitu landsins.
Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.








