Þung áföll dýrmæt reynsla í uppbyggingu til framtíðar
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, dró upp skýra mynd af þeim mikla krafti og grósku sem nú einkennir atvinnulíf á Suðurnesjum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi sveitarfélagsins sem haldið var í Hljómahöll 16. september síðastliðinn. Í opnunarræðu sinni lagði bæjarstjóri ríka áherslu á að samfélagið hefði sýnt af sér einstaka seiglu með því að vinna sig í gegnum mörg og þung áföll á síðustu áratugum. Þessi dýrmæta reynsla nýtist nú til fulls við að byggja upp til framtíðar.
Víðtækar aðgerðir til að efla vöxt og samkeppnisstöðu
Til að liðka fyrir frekari vexti og styðja við atvinnulífið hefur sveitarfélagið ráðist í afgerandi aðgerðir. Eitt athyglisverðasta skrefið er að fella innviðagjöld niður í núll krónur, sem er ætlað að veita verkefnum á svæðinu aukið súrefni og minnka framleiðslukostnað við uppbyggingu. Á sama tíma verður framboð af sérbýlishúsalóðum aukið til að mæta mikilli eftirspurn, svo nýtt starfsfólk og fjölskyldur þess finni húsnæði við hæfi.
Samkeppnisforskot svæðisins að sögn Vilhjálms er ótvírætt, en sterk staðsetning nálægt alþjóðaflugvelli, alþjóðlegri höfn og stærsta gagnaversklasa landsins skapar einstakt umhverfi fyrir nýja og vaxandi starfsemi. Með þessum kröftugu aðgerðum sendir sveitarfélagið skýr skilaboð um að Reykjanesbær ætli sér að vera tilbúinn samstarfsaðili og tryggja að góðar hugmyndir og tækifæri verði að veruleika á Suðurnesjum.
Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.





