Blue Carrental
Blue Carrental

Fréttir

Algalíf horfir til alþjóðlegrar samkeppnishæfni
Frá pallborðinu á þinginu. VF/hilmarbragi
Laugardagur 19. september 2026 kl. 03:04

Algalíf horfir til alþjóðlegrar samkeppnishæfni

Þrefölduðu framleiðsluna á Ásbrú

Hátæknifyrirtækið Algalíf á Ásbrú hefur staðið í miklum fjárfestingum á síðustu árum þar sem framleiðsla félagsins á verðmætu astaxanthini úr örþörungum hefur meira en þrefaldast. Kári Marís Guðmundsson, forstjóri Algalífs, fór yfir vaxtarsögu og framtíðarsýn félagsins í pallborðsumræðum á Atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Algalíf hóf starfsemi sína í gömlu húsnæði varnarliðsins árið 2014 en réðst í stórfellda stækkun árið 2021. Fjárfest hefur verið fyrir um fimm milljarða króna á síðustu fimm árum, en heildarfjárfesting félagsins frá upphafi nemur um 10 milljörðum króna.

Kjöraðstæður á Ásbrú og alþjóðleg samkeppni

Staðsetningin á Ásbrú býður upp á stöðugt aðgengi að hreinu vatni, endurnýjanlegri orku og öflugum innviðum. Þá skiptir nálægðin við Keflavíkurflugvöll og fjölbreytt mannlíf miklu máli til að laða að sérhæft starfsfólk og erlenda sérfræðinga. Kári benti á að þótt stórir geirar eins og gagnaver og fiskeldi séu fyrirferðarmiklir á svæðinu sé nauðsynlegt að rækta fjölbreytileika í atvinnulífinu, en þörungaræktun Algalífs skapar hátæknistörf sem styrkja efnahagslegan grunn svæðisins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þar sem um 95% af framleiðslu Algalífs fara á erlenda markaði undirstrikaði Kári að Reykjanesbær og Ísland í heild sinni væru í beinni alþjóðlegri samkeppni. Því þyrftu stjórnvöld og sveitarfélög að tryggja samkeppnishæft starfsumhverfi og markaðssetja svæðið af krafti til framtíðar. Kári sagði félagið hvergi nærri hætt og útilokaði ekki frekari stækkanir á Ásbrú á komandi árum enda stæðu mörg tækifæri enn fyrir dyrum.

Í spilaranum hér að neðan er upptaka frá þinginu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn