Ásgeir Orri í 21 árs landsliðið
Ásgeir Orri Magnússon, aðal markvörður Bestu deildarliðs Keflavíkur í knattspyrnu hefur verið valinn í U21 árs landslið Íslands fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2027.
Ísland leikur þrjá leiki, gegn Frakklandi og Sviss á Laugardalsvelli áður en liðið heldur til Færeyja í þriðja leikinn.








